Eldri borgari frá Texas, Jimmy Jack McDaniel að nafni, hefur verið handtekinn fyrir að keyra Tesla Cybertruck bíl út í stöðuvatn. Vildi hann prófa eiginleika bílsins.
Jimmy Jack var handtekinn þann 18. maí síðastliðinn eftir að hafa viljandi keyrt út í stöðuvatnið Grapevine Lake, norðvestan við borgina Dallas.
Lögreglan fékk tilkynningu um að bíllinn væri fastur í vatninu, skammt frá bakkanum. Hann var alveg aflslaus og byrjaður að leka vatni.
Vöðunar eiginleiki
Ökumaðurinn, Jimmy Jack, sagði lögreglumönnunum að hann hefði keyrt viljandi út í vatnið til þess að prófa svokallaða „vöðunar eiginleika“ sem auglýstir eru í upplýsingahandbók bílsins. En samkvæmt handbókinni á bíllinn að geta keyrt yfir ár og fljót.

Hins vegar segir einnig að ökumenn verði að athuga dýptina áður en ekið er út í sem og að athuga hvort einhverjar hindranir eru í farveginum. Segir að ökumenn verði að nota eigin bestu dómgreind, keyra hægt og örugglega og ef vatnið reynist of djúpt þá snúa við. Vatnstjón sem hlýst af því að aka yfir ár sé ekki á ábyrgð Tesla.
Flúðu út um gluggana
Jimmy Jack var ekki einni í bílnum. En þegar hann festi sig þurftu þeir að flýja út um glugga bílsins. Bíllinn sjálfur var svo hífður upp úr vatninu með krana.
Jimmy Jack hefur verið ákærður fyrir að keyra utan vegar í stöðuvatni og að hundsa viðvörunarskilti. Honum var sleppt úr varðhaldi þann 19. maí.