Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist skilja að frumvarp um brottvísunarstöð sé flókið og erfitt mál. Þó hafi líklega enginn málaflokkur fengið jafn mikla umfjöllun á vettvangi flokksins og meðal grasrótar undanfarin misseri og útlendingamál.
„Þetta hefur verið sett í það samhengi að það sé enginn fótur fyrir þessu í stefnu flokksins. Það liggur alveg fyrir að þetta frumvarp er neyðarúrræði. Þetta er neyðarúrræði þegar öll önnur tilmæli, allt annað hefur verið reynt,“ sagði Kristrún í Kastljósi í gær.
Hópur 55 félaga í Samfylkingunni og óflokksbundins jafnaðarfólks mótmælti brottvísunarstöð í aðsendri grein á Vísi í síðustu viku og sagði ótækt að þingflokkur Samfylkingarinnar hafi samþykkt þessi lög. Kröpp hægri beygja hafi verið tekin – án umræðu á vettvangi flokksins.
Kristrún segir fólk tala um brottvísunarstöðina eins og hún sé úrræði sem verði gripið til eins og ekkert sé, það sé ekki rétt.
Ekki bara auðveldar ákvarðanir
„Þarna er um einstaklinga að ræða sem í dag er verið að vista í gæsluvarðhaldi. Börnin eru í mörgum tilvikum tekin af þeim í fóstur. Við erum í raun að stíga betra skref með því að vera með afmarkað úrræði þar sem er passað upp á fólk,” sagði Kristrún.
Þingflokkur Samfylkingarinnar hafi kosið með málinu vegna þess að hann viti þetta. Kristrún segir dómsmálaráðherra og meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar hafa haldið mjög vel á málinu.
Óánægju samflokksfólks hennar segir hún til marks um skiptar skoðanir í útlendingamálum sem séu ekki óeðlilegar í stórum flokki.
„Í svona starfi þá tekur þú ekki bara auðveldar ákvarðanir. Mikið af því sem við eigum við á sviði barnaverndar, geðheilbrigðis, dómsmála og þess háttar, felur í sér einhvers konar frelsissviptingar, erfiðar aðstæður sem þarf að taka á.“
Hún segir engan gleðjast yfir því að þurfa að ákvarða þessi mál. „Það er verið að gera þetta eins mannúðlega og hægt er og það er verið að tryggja þarna líka öryggi fólks og eðlilegri aðstæður.“
Kristrúnu Frostadóttur má sjá ræða deilur innan Samfylkingarinnar og þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB ásamt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, í spilaranum hér að neðan.