„Einn af fáum lög­fræðingum sem heldur upp á sið­fræðina“ - Vísir

„Einn af fáum lög­fræðingum sem heldur upp á sið­fræðina“ - Vísir

„Einn af fáum lög­fræðingum sem heldur upp á sið­fræðina“ - Vísir

Einar Baldvin starfar hjá lögmannsstofunni Lagastoð og veitir þar ráðgjöf á sviði skattaréttar, félaga- og viðskiptaréttar, fasteignaréttar og erfða- og fjölskylduréttar. Þegar hann er ekki að sinna lögfræðilegum álitamálum sinnir Einar listagyðjunni, nánar tiltekið leiklistargyðjunni.

Fyrir tveimur árum skrifaði Einar sitt fyrsta leikrit, Nauðbeygða messu nýrra tíma, sem var sett upp í Háskólabíói. Hann hefur endurtekið leikinn og frumsýnir í vikunni Ástarseyði Bergamólíós kroppinbaks. Blaðamaður ræddi við Einar um lögfræðina, leiklistina og hverju leikhúsgestir eiga von á frá Bergamólíó kroppinbak og vinum hans.

Lögfræðingur á daginn, leikskáld á kvöldin

Þú ert lögfræðingur að skrifa leikrit, fer þetta vel saman?

„Ég er reyndar líka heimspekingur, tengingin er kannski mest þar. Ég tók BA-gráðu í heimspeki samhliða BA-gráðunni í lögfræði. Það var ömurlegt og olli gríðarlegum þjáningum sem var kannski uppspretta leikritaskrifunar,“ segir Einar.

„En til að svara spurningunni þá fer þetta ágætlega saman. Maður er níu til fjögur á lögmannsstofunni og síðan breytist maður í skáld á næturnar.“

Einar með tvíburasystur sinni við útskrift frá HÍ, hún er læknir og hann lögfræðingur.

Þú ert ekki skáldlegur í lögmannsstörfunum?

„Ég er reyndar helvíti skáldlegur þar. Í lögfræði þá ertu að fá yfirvöld til að trúa sögunni þinni fram yfir sögu einhvers annars, nema þú þarft auðvitað að styðjast við einhver sönnunargögn, þannig þetta er mjög svipað,“ segir Einar.

Hvað varstu að skoða í heimspekinni?

„Það sem maður hafði mestan áhuga á var siðfræðin og tilvistarstefnan.“

Siðfræðin er nú tengd lögfræðinni?

„Ég myndi segja það, ætli maður sé ekki einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina,“ segir Einar.

Kröfurétturinn að myrða sálin þegar messan varð til

„Ég hef skrifað síðan ég var bara sjö ára en þetta byrjaði allt þegar ég var að læra kröfurétt í náminu. Það var að myrða sál mína, það var svo leiðinlegt. Þannig ég ákvað að skrifa þetta verk, Nauðbeygða messu nýrra tíma, til að gefa sálinni minni smá frið,“ segir Einar um skrifin.

„Kröfuréttur 1 kveikti leiklistina í mér og ég skrifaði það verk bara á tveimur dögum. Síðan greip Vignir Rafn Valþórsson verkið og fannst það af einhverjum ástæðum fínt leikrit og við endum á að setja þetta upp mér til mikillar undrunar,“ segir hann.

Starkaður Pétursson hefur farið með burðarhlutverk í báðum verkum Einars.

Nauðbeygð messa nýrra tíma var sett upp í sviðslistahúsinu Afturámóti í Háskólabíói haustið 2024 í leikstjórn Vignis Rafns með Starkað Pétursson, Selmu Rán Lima, Mikael Emil Kaaber, Arnór Björnsson, Jakob van Ousterhout og Berglindi Öldu Ástþórsdóttur í aðalhlutverkum.

„Ég held að þetta sé þannig að ef allir fíla leikritið þá er þetta dæmi um að þú hafir ekki sagt neitt og ef enginn fílaði það sagðirðu of mikið. Í tilviki Nauðbeygðrar messu fannst sumum þetta yndislegt og öðrum skelfilegt. Þannig ég held að þetta hafi bara verið passlegt leikrit,“ segir Einar.

Leikritaskrifin hafi ekki komið fjölskyldu Einars neitt á óvart enda hafði hann skrifað sögur frá barnsaldri. „Þau höfðu aðallega áhyggjur af fjárhagslegum afleiðingum þessarar köllunar,“ segir hann. 

Ekki háður Teslu-eign eða öðrum veraldlegum hlutum

Eftir að Einar skrifaði fyrst leikrit fyrir tveimur árum bankaði það næsta upp á í vor.

„Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks er hliðarverkefni sem ég byrjaði á fyrir nokkrum mánuðum og þá komst maður á bragðið og fór að bardúsa miklu meira í listinni,“ segir Einar.

Guðrún, Starkaður, Mikael, Hólmfríður og Freysteinn fara með aðalhlutverk verksins.

Nauðbeygð messa nýrra tíma fjallaði um ungan mann sem hefur ákveðið að stytta sér aldur eftir hvatningu frá sálfræðingnum sínum en gengur brösuglega við gjörninginn. Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks ber öllu fantasíulegra yfirbragð, gerist í konungsríkinu Moríu og fjallar um Filippus krónprins sem er að leita sér að konu svo hann geti tekið sér sæti í hásæti föðurins.

„Á einhvern hátt er þetta líka um ungan mann sem er að reyna að stytta sér aldur. Þetta er eiginlega Shakespeare „meets“ Die hard „meets“ grískir harmleikir og þetta er mjög vond blanda,“ segir Einar.

„Þetta fjallar um ástina og hvað samfélagið er orðið súrt með öllu samúðarleysinu, upplýsingaflæðinu og sýndarmennskunni. Við tínum alls konar hluti til.“

Hvert sækir maður innblástur fyrir svona verk? 

„Maður er ekki menntaður sviðshöfundur, bókmenntafræðingur eða í ritlist þannig ég veit ekki hvar ég ætti að byrja að leita, það gæti verið styrkleiki eða gríðarlegur veikleiki. Þetta er oftast þannig að ég sé endinn fyrir mér og svo skrifa ég í flæði,“ segir Einar.

Ekki bara Íþróttaálfurinn heldur líka Filippus krónprins.

„Ég geri engar beinagrindur eins og menntað fólk myndi gera. Sem er kannski ástæðan fyrir því að sumir fíla ekki verk mín,“ bætir hann við.

„Ef mér finnst leiðinlegt að skrifa þá hætti ég bara og fer að gera eitthvað annað eins og löfræði. Þetta kemur bara upp úr sköpunargleðinni.“

Er þetta hobbí eða köllun?

„Ástæðan fyrir því að maður fer í heimspeki er að maður hefur alltaf verið að skrifa og er algjör pælari. Ég hugsa aðeins öðruvísi en aðrir, ég er ekki háður Teslu-eign eða öðrum veraldlegum eignum eins og sófum, sem fólk hefur svo mikinn áhuga á,“ segir Einar.

„Þetta er eiginlega böl eða sjúkdómur, þörf til að gagnrýna eða bæta.“

„Mér líður eins og leikrit sé þannig að það hefur áhrif í fimmtán sekúndur, fólk gengur út og kveikir svo á Netflix. Markmiðið er að fá allavega fimm á hverri sýningu til að hugsa aðeins út fyrir kassann,“ segir Einar um áhrif leikrita sinna.

En þú ert líka að reyna að ögra?

„Ég myndi algjörlega segja það, öll mín verk hafa verið í ögrandi kantinum. Þetta er bannað börnum yngri en 24 ára af ástæðu.“

Skráir systur sína fyrir verkunum

Stór hópur skapandi fólks tekur þátt í verkinu og vinnur að því fyrir sáralítinn pening. Einar hefur notið góðs af afar öflugum leikstjóra sem hefur tekist að sannfæra ótrúlegasta fólk til að taka þátt í verkinu.

„Nú verður maður líka að hrósa Agli Andrasyni leikstjóra, hann er yfirnáttúrulegur og illur skógarpúki sem leggur álög á samferðarmenn sína. Hann fær hvern manninn á fætur öðrum til að vinna ótrúlega vinnu fyrir sig. En síðan spilar líka inn í að það vilja allir á endanum hafa gaman og ferlið er búið að vera ótrúlega skemmtilegt - það eru launin, hugsa ég,“ segir Einar.

Helga Brá er skráð sem höfundur beggja verka Einars.

Leikritinu má að einhverju leyti lýsa sem fjölskyldustarfsemi. Mágur Einars, Tómas Arnar Þorláksson, er aðstoðarleikstjóri þess og svo sér tvíburasystir Einars, Helga Brá Brimar, um alla búninga, fagurfræði og leikmuni auk þess sem hún rífur upp meðalgreindarvísitölu hópsins með viðveru sinni. Ekki nóg með það heldur er Helga skráð sem höfundur verksins.

„Ég var reyndar hundskammaður fyrir að hafa skráð tvíburasystur mína fyrir verkunum,“ segir Einar.

„En mér finnst ósvalandi fyndið að það sé verið að stoppa hana út á götu og hrósa henni fyrir að vera læknir að skrifa svona verk. Stríðnin tekur yfir eitthvað stolt sem listamenn eiga að bera,“ segir Einar og nefnir að eitt sinn hafi Helga verið stoppuð í Krónunni af eldri konu sem dáðist að henni fyrir dugnaðinn.

Frumraun hjá Guggunni

Leikhópur Ástarseyðisins er skipaður öflugum ungum leikurum á borð Arnór Björnsson, Hólmfríði Hafliðadóttur, Níels Thibaurd Girerd, Starkað Pétursson og Mikael Emil Kaaber, sem hefur gert það gott í Moulin Rouge, en þar að auki stígur Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, sín fyrstu skref á leiksviði í verkinu.

Gugga í gúmmíbát spreytir sig á leiksviðinu í fyrsta sinn.

„Í fyrsta lagi kom Gugga fyrir í þætti sem heitir Bannað að hlæja þar sem komu í ljós, að mínu mati, ótrúlegir hæfileikar, gáfur og húmor. Síðan þurftum við frummynd fegurðar eða ástar í íslensku samfélagi og við teljum að hún búi í Goðrúnu í Freigátu eða Guggu í gúmmíbát,“ segir Einar.

„Hún er búin að taka þessari áskorun fáránlega vel. Hún er „all-in“ í þessu og verður á sviði í fyrsta sinn sem er auðvitað dálítið ógnvekjandi. Þetta er aðeins öðruvísi en að hafa myndavél fyrir framan sig, að hafa tvö hundruð manns að horfa í augun á þér.“

Það er líka munur á því að skrifa leikrit í fyrsta skiptið og að gera það öðru sinni. Einar segist yfirvegaðari núna, verandi reynslunni ríkari.

„Ég held að það sé meiri ró yfir mér og maður er búinn að átta sig á því að endaniðurstaðan skiptir ekki öllu mál heldur ferlið. Nú tala ég eins og þetta sé skelfilegt leikrit - þetta er fínt leikrit - en að lokum þá tökum við gleðina með okkur í kistuna frekar en Tesluna.“

Anarkistar fá frítt inn og bannað börnum undir 24 ára

Frumsýning Ástarseyðis Bergamólíó kroppinbaks er handan við hornið og æfingaferlið búið að vera í fullum gangi síðustu vikurnar. Einar hefur þó látið verkið nær alfarið í hendur listrænna stjórnenda.

„Ég læt illa skógarpúkann ráða þessu öllu, hann er búinn að gera þetta að sínu og búinn að vera eins og hvirfilvindur. Ég mæti við og við, gef honum mat og að drekka og síðan er ég yfirleitt farinn þegar það eru þrjátíu mínútur búnar af æfingunni og segi við Egil: „Mikið ofboðslega ert þú mikill snillingur.“ Það er minn þáttur í þessu,“ segir Einar.

Það er ekki að ástæðulausu sem Einar lýsir Agli Andrasyni sem skógarpúka.

Fyrstu fimm sýningarnar eru komnar í sölu á Tix og þegar orðið uppselt á sýningu númer tvö. Frumsýningarvikan er runnin upp og næst á dagskrá er að sjá hvernig fólk tekur í verkið.

„Við erum aðallega að hvetja fólk til þess að mæta ekki, við teljum hollt fyrir íslenska þjóðarsál að missa af þessu. Þetta er aðeins öðruvísi taktík heldur en þar sem fólk er hvatt til að kaupa-kaupa-kaupa-kaupa. Það skilar sér örugglega ekki og er herfileg markaðsaðferð,“ segir Einar.

Þetta virki sennilega best á sósíalista og anarkista að mati Einars sem segir: „Ég hvet anarkista til að stíga fram og senda á mig, ég skal skaffa þeim miða frítt.“

Leikarar verksins fá borgað með gleði.

„Ef ég má ítreka eitt, þá er það að sýningin er bönnuð börnum yngri en 24 ára. Það verður skliríkjað við hurð og ef þarf er farið í framheilamæling,“ bætir Einar við sem er greinilega viðkvæmur fyrir óþroskuðum áhorfendum.

Nú þegar Einar er kominn með leiklistarbakteríuna er ýmislegt annað í farvatninu.

„Maður getur ekki stoppað núna, það er mjög spennandi verkefni með Kolbeini Sveinssyni leikara framundan og annað spennandi verkefni með Mikaeli Emil Kaaber. Það er það sem er í fararteskinu,“ segir Einar að lokum áður en hann hverfur aftur til skjólstæðinga sinna hjá Lagastoð.

#einn #fáum #heldur #lögfræðingum #sem


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262904203d/-einn-af-faum-log-fraedingum-sem-heldur-upp-a-sid-fraedina-

📰 Aðrar fréttir

Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
📅 09.10.2026 👁️ 1
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
Sendinefnd Úkraínu fundar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar og evrópskum embættismönnum í Miami á Flórída í dag. Tilefni fundarins er að ræða nýjar hug...
ICE agent shoots man in New York City
📅 09.10.2026 👁️ 2
ICE agent shoots man in New York City
The Department of Homeland Security said ICE was arresting a "criminal illegal alien"; New York's mayor called it "unconscionable".
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
📅 09.10.2026 👁️ 2
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
📅 09.10.2026 👁️ 2
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær ...
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 4
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison
📅 08.10.2026 👁️ 1
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 4
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 4
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 4
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 4
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 4
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 4
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...