Það er eitt mesta manntjón sem orðið hefur í höfuðborginni í einni árás það sem af er þessu ári. Yfirmaður hersins í borginni segir að árásin hafi byrjað á miðnætti að staðartíma og að Rússar hafi sent skæðadrífu skotflauga og dróna á borgina.
Borgarstjórinn Vitalí Klitscho segist óttast að fleira fólk sé grafið undir rústum bygginga sem skemmdust í miðborginni.
Rússar segjast hinsvegar hafa verið að ráðast að vöruhúsum sem geymi skotfæri og önnur hergögn og á drónaverksmiðjur Úkraínumanna. Að auki, segja Rússar, var ráðist að þremur flutningaskipum sem þeir segja hafa verið að flytja hergögn til hafnarborgarinnar Ódessu.
Rússar hafa sett aukinn kraft í árásir á höfuðborgina undanfarið um leið og Úkraínumenn hafa aukið árásir sínar á rússneska innviði, orkuver, samgöngumannvirki og vöruhús.