Eiginkona Reykvíkings flutti erlendis fyrirvaralaust

Íslenskur karlmaður óskar eftir því að skilja við rússneska eiginkonu sína en þetta kemur fram í stefnu sem birtist í Lögbirtingablaðinu.
Þar kemur einnig fram að þau hafi gift sig þann 24. apríl 2024 hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu eftir stutt samband. Hins vegar flutti konan fyrirvaralaust til Rússlands þann 12. júlí 2024 og sleit þannig samvistum þeirra.
Lagði karlmaðurinn fram beiðni um skilnað hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu þann 4. febrúar 2026. Allar samningaviðræður við konuna hafa reynst árangurslausar miðað við það sem stendur í stefnunni. Þá hefur konan neitað að mæta til sýslumanns og neitar þannig að láta sig málið varða.
Lögheimili hennar er óskráð samkvæmt stefnunni. Þá er dvalarstaður hennar ókunnur og hafa allar tilraunir til að hafa uppi á henni með öðrum leiðum, svo sem í gegnum síma, tölvupóst og samfélagsmiðla, reynst árangurslausar.
Skilnaðarmál þeirra verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní.