Starfandi innviðaráðherra, tekur undir áhyggjur strandveiðisjómanna af óvissu í greininni og misskiptingu milli landshluta. Hún vill fara yfir málin með sjómönnunum og finna varanlegri lausnir fyrir greinina.
Inga Sæland, sem er starfandi innviðaráðherra, undirritaði í vikunni breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Aflaheimildir til strandveiða verða auknar um tæp þúsund tonn, úr rúmum 13 þúsund tonnum í rúm 14 þúsund. Með því ættu strandveiðar að ná 48 dögum, skerðingarlaust.
Mikilvægt að hægt sé að treysta á atvinnugreinina
Strandveiðisjómenn fagna aukningunni en vilja sjá meiri fyrirsjáanleika í greininni. Inga segir mikilvægt að hægt sé að treysta á atvinnugreinina. Komið verði saman á vinnustofum í haust.
„Nú hef ég boðað formann landsambandsins, ég hef talað við smábátasjómenn og boðað þá til okkar Eyjólfs og fleiri á vinnufund eftir að vertíðinni lýkur í vetur. Innviðaráðherra var tilbúinn með frumvarp í fyrra sem tryggði 48 daga en byggði á þrepakerfi sem strandveiðisjómennirnir okkar voru ekki nógu öruggir með og vildu fá að taka þessa sumarvertíð án þess að til þeirrar löggjafar og breytingar kæmi. Við samþykktum það. Þannig að núna viljum við vinna þetta með þeim og vonumst til að þeir geti kynnt það í september þegar þeir fara að gera út af örkinni og heimsækja aðildafélögin sín út um allt land.“
Inga segir að þar sem fiskurinn gangi fyrst vestur fyrir halli á aðra landshluta.
„Flokkur fólksins hefur haft það á sinni stefnu að það yrðu frjálsar handfaraveiðar alltaf. Þetta er einhver vistvænasta veiðiaðferð sem til er í heiminum í dag, ekki eru það strandveiðar sem að myndu ógna fiskistofnunum hér í kringum landið, það liggur fyrir.“
Hefur ráðuneytið skoðað að fella niður svæðaskiptingu?
„Nei ekki núna en ég skil þær áhyggjur sem strandveiðimennirnir okkar eru að tala um, sérstaklega þeir sem búa fyrir norðan og austan þar sem í raun aðalaflagæftirnar eru til að byrja með á vertíðinni á svokölluðu A svæði fyrir vestan þar sem er mest um fiskigengd í upphafi strandveiðitímabilsins. Síðan gengur fiskurinn norður og austur fyrir land og eins og í fyrra þá var flotinn sendur í land 12. júlí. Þá liggur fyrir að þeir hafa ekki setið við sama borð sem að búa fyrir norðan og austan.“
Lífæð fyrir brothættar byggðir
Inga er alin upp í litlu sjávarplássi og segir strandveiðisjómennsku lífæð fyrir brothætt byggðarlög. Þau stuðli að fjölda afleiddra starfa.
„Ég vil bara sjá litlu sjávarplássin okkar fá að blómstra. Ég vil að byggðin fái að haldast umhverfis landið og að við séum ekki að mergsjúga þá og jafnvel taka í burtu frá þeim aflaheimildir sem hafa verið til staðar.“