Kona sem fór á sitt fyrsta stefnumót í næstum tvö ár varð miður sín þegar hún fékk átta orða sms frá manninum á eftir, skilaboð sem gerðu hana aftur afhuga stefnumótum. Eins og allir vita sem eru að leita að hinum eina sanna lífsförunaut eða einnar nætur gamni þá eru öpp og samfélagsmiðlar samskiptamiðilinn í dag. Hayley Lena er ein þeirra sem fór loksins á stefnumót. Karlmaðurinn sem hún hitti sá um skipulagið, ferð á safn fyrir þau. Segir Hayley stefnumótið hafa gengið vel og hún skemmt sér konunglega, þar til maðurinn sendi henni sms.
„Ég fór á frábært fyrsta stefnumót en svo fékk ég átta orða sms“