Um er að ræða sex herbergja steinsteypt einbýlishús sem var byggt árið 1925 og er á besta stað í Þingholtunum, skammt frá Hallgrímskirkju og Listasafni Einars Jónssonar.
Hjónin hafa endurnýjað húsið mikið á síðustu árum en Hrafnhildur, sem er dóttir Ingu Lindar Karlsdótur og Össurar Brynjólfssonar, er upplýsingafulltrúi hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu en Árni vinnur við eignastýringu hjá Birtu lífeyrissjóði.
Í húsinu er nýtt eldhús, baðherbergi og gólfefni. Þá hafa allar innihurðir, gluggar og gereft verið pússuð upp og lökkuð og gólfhiti á jarðhæð hússins.
Húsið telur forstofu, rúmgóðar stofur, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stórt opið rými í risi, þvottahús og geymslu. Góðar svalir og fallegur bakgarður. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og sjá myndir hér að neðan: