Dómarinn í máli Páls skipstjóra gegn RÚV og Þóru var lögmaður RÚV í Brúneggjamálinu
Sindri M. Stephensen, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, sýknaði á miðvikudag RÚV og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Kveiks, í máli sem Páll Steingrímsson skipstjóri höfðaði vegna aðkomu RÚV og Þóru að byrlunar- og símamálinu.
Áður en Sindri var skipaður dómari hafði hann starfað að lögfræðilegri hagsmunagæslu fyrir RÚV, meðal annars í hinu svokallaða Brúneggjamáli.
AuglýsingStarfaði fyrir RÚV í Brúneggjamálinu
Sindri var lögmaður RÚV í máli sem tengdist Kastljósumfjöllun um Brúnegg árið 2016, sem Þóra Arnórsdóttir vann að ásamt öðrum fréttamönnum. Þar var meðal annars deilt um rétt RÚV til aðgangs að gögnum frá opinberum aðilum sem vörðuðu hagsmuni einstaklinga og fyrirtækja.
Sindri, sem þá starfaði hjá lögmannsstofunni Juris slf., annaðist samskipti við Matvælastofnun fyrir hönd RÚV og kærði synjun stofnunarinnar um afhendingu gagna á grundvelli upplýsingalaga.
Nútíminn hefur undir höndum tölvupósta, greinargerðir og önnur gögn sem sýna að Sindri kom fram fyrir hönd RÚV í málinu.

Brúneggjamálið fór alla leið í Hæstarétt
Eftir umfjöllun Kastljóss varð Brúneggjamálið að umfangsmiklu dómsmáli sem fór alla leið til Hæstaréttar. Þar var meðal annars tekist á um rétt fjölmiðla til að nota upplýsingar um einstaklinga og fyrirtæki, auk skaðabótakröfu Brúneggja sem síðar varð gjaldþrota.
Í umfjöllun RÚV um niðurstöðu Hæstaréttar var því haldið fram að dómurinn staðfesti rétt fjölmiðla til að taka við upplýsingum og miðla þeim áfram.
Ekki liggur fyrir hvenær Sindri hætti afskiptum af Brúneggjamálinu fyrir hönd RÚV. Hann var skipaður dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur í mars síðastliðnum.
Auglýsing