Diljá Mist Einarsdóttir segir að starfsmaður Evrópuþingsins hafi kynnt fyrir henni og Arndísi Önnu Kristínardóttur, áform um kosningaherferð sem meðal annars ætti að vinna gegn fylgi „popúlískra flokka“ í Evrópu.
Diljá sagði frá þessu í viðtali við Þórarin Hjartarson í hlaðvarpinu Ein Pæling þar sem rætt var um mikla fylgisaukningu AfD í Þýskalandi en hann mælist nú stærsti flokkur Þýskalands.
„Þetta er vaxandi trend“
„AfD er núna stærsti flokkur í Þýskalandi,“ sagði Þórarinn og benti á uppruna flokksins og andstöðu hans við Evrópusamrunann.
„Þetta er vaxandi trend í Evrópusambandsríkjum,“ svaraði Diljá.
„Þau sem sagt eru að fara í sína eigin kosningaherferð. Bara eins og starfsfólk Alþingis Íslendinga væri að undirbúa herferð gegn einhverjum stjórnmálaflokki á Íslandi vegna þess að þeim líkaði ekki alveg agendan hjá honum“
Hún rifjaði þá upp heimsókn sína í Evrópuþingið ásamt Arndísi Önnu.
„Ég sat ásamt Arndísi Önnu, sem var alveg jafn hneyksluð og ég, fyrirlestur í Evrópuþinginu hjá starfsmanni Evrópuþingsins, bara eins og starfsmanni Alþingis sem er ekki pólitískur fulltrúi.“
Að sögn Diljár hafi starfsmaðurinn síðan kynnt fyrir þeim hvernig Evrópuþingið hygðist beita sér í aðdraganda Evrópuþingskosninganna.
„Hann hélt fyrir okkur glærukynningu um það að þingið sjálft, stofnunin, væri að fara í herferð í aðdraganda Evrópuþingskosninga til að vinna gegn fylgi popúlískra flokka í Evrópu.“
Líkir þessu við að starfsfólk Alþingis færi gegn stjórnmálaflokki
Diljá sagði þetta hafa komið þeim verulega á óvart og líkti því við að starfsfólk Alþingis tæki afstöðu gegn ákveðnum stjórnmálaflokki fyrir kosningar.
„Þau sem sagt eru að fara í sína eigin kosningaherferð. Bara eins og starfsfólk Alþingis Íslendinga væri að undirbúa herferð gegn einhverjum stjórnmálaflokki á Íslandi vegna þess að þeim líkaði ekki alveg agendan hjá honum.“
Hún sagði þær Arndísi Önnu hafa verið forviða yfir kynningunni.
„Við sátum þarna og vorum algjörlega forviða. Þetta var svo galið. Ég skrifaði grein um þetta og við vorum alveg svakalega hissa.“
„Svona er þetta ótrúlega andlýðræðislegt apparat.“
Fundurinn sem Diljá vísar til fannst
Nútíminn kannaði frásögn Diljár og hægt er að rekja hana aftur til fundar sem hún og Arndís Anna sátu í Evrópuþinginu í Strassborg dagana 28. og 29. febrúar 2024.
Í opinberri fundarskýrslu Alþingis kemur fram að um hafi verið að ræða fund þingmannanefndar EES. Þar er sérstaklega skráð að Diljá Mist Einarsdóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir hafi sótt fundinn fyrir hönd Íslandsdeildarinnar ásamt Eggerti Ólafssyni, ritara nefndarinnar.
Skrifaði um málið strax árið 2024
Þann 7. júní 2024, rúmum þremur mánuðum eftir heimsóknina til Strassborgar, birti hún grein á Vísi undir fyrirsögninni Kosningaáróður skrifstofu Alþingis?
Þar lýsti hún sama atviki og sagði þingmennina hafa fengið fyrirlestur frá „forstöðumanni kosningaherferðaskrifstofu Evrópuþingsins“, eða Directorate for Campaigns. Diljá skrifaði þá að í kynningunni hefði verið rætt um áhyggjur af auknu fylgi popúlískra flokka sem væru „gagnrýnir á ESB“ og að aukin kosningaþátttaka væri talin líkleg til að draga úr fylgi þeirra.
Hún sagðist þegar þá hafa gert athugasemd við þetta og velt því upp hvernig Íslendingum þætti ef skrifstofa Alþingis ræki sambærilega kosningaherferð og talaði fyrir eða gegn ákveðnum kosningaúrslitum.
Forstöðumaður kosningaherferða virðist hafa verið Philipp Schulmeister
Diljá nafngreindi ekki starfsmanninn í greininni árið 2024. Opinber gögn Evrópuþingsins sýna hins vegar að Philipp Schulmeister gegndi embætti Director for Campaigns hjá samskiptasviði Evrópuþingsins á þessum tíma. Í opinberri dagskrá Evrópuþingsins frá apríl 2024 er hann til dæmis skráður sem aðilinn sem kynnti stofnanabundna kosningaherferð þingsins fyrir Evrópuþingskosningarnar.
Philipp Schulmeister starfar enn hjá stofnuninni.
Hann er í dag Director for Outreach hjá samskiptasviði Evrópuþingsins, Directorate-General for Communication. Þar fer hann fyrir þeirri starfsemi sem snýr að útrás og tengslum þingsins við almenning.