Á bæjarráðsfundi í Reykjanesbæ í gær var samþykkt að veita heimild til þess að 49 prósent eignarhlutur í húsi sem áður hýsti byggðasafn bæjarins og er enn skráð sem safn verði veðsettur. Hluturinn er í eigu félags sem er í eigu Steinþórs Jónssonar hótelstjóra og aðaleigadna Hótels Keflavíkur en umrætt hús er steinsnar frá hótelinu. Reykjanesbær á 51 prósent hlut í húsinu en það var fært Keflavíkurbæ að gjöf á áttunda áratug síðustu aldar.
Deilt um veðsetningu Steinþórs á helmingnum af safnahúsi