Burnham staðfestir framboð – orðinn þingmaður Verkamannaflokksins

Burnham staðfestir framboð – orðinn þingmaður Verkamannaflokksins

Burnham staðfestir framboð – orðinn þingmaður Verkamannaflokksins

Þingmenn Verkamannaflokksins hópuðust saman í Westminster Hall í breska þinginu til að vera á mynd með nýjum þingmanni flokksins, og líklega verðandi leiðtoga, Andy Burnham.

Hann er nýbúinn að taka formlega við þingsæti flokksins í neðri málstofu breska þingsins. Nick Eardly, fréttamaður BBC, telur að um tvö hundruð þingmenn hafi safnast saman, um helmingur þingflokks Verkamannaflokksins. Meðal þeirra sem voru viðstaddir myndatökuna voru ráðherrar.

Fréttamaður The Guardian bendir á að þar sem það þurfi stuðning 81 þingmanns til að skora leiðtogann á hólm sé sennilega hægt að gera ráð fyrir því, miðað við fjölda þingmanna í myndatökunni, að Burnham verði sjálfkjörinn leiðtogi flokksins.

Andy Burnham er formlega orðinn þingmaður Verkamannaflokksins fyrir Makerfield. Fagnaðarlæti brutust út á bekkjum þingmanna Verkamannaflokksins þegar Burnham kom inn í neðri málstofu þingsins.

Lindsay Hoyle, forseti neðri málstofu breska þingsins, bauð Burnham velkominn í þingsal. Fréttamaður The Guardian segir hann hafa hækkað róm sinn þegar hann sagði: „Við komum núna að Andy Burnham, þingmanni fyrir Makerfield.“

Desmond Swayne, þingmaður Íhaldsflokksins, hrópaði „Róm er bjargað“ þegar Burnham og tveir aðrir þingmenn gengu inn ganginn. Annar þingmaður hrópaði þá að hann væri ekki Messías. Sjá mátti bros á andliti Burnham og heyra hlátur þingmanna.

Burnham las síðan upp eið og skrifaði undir skjal. Því næst tók hann í höndina á Hoyle.

Athöfnina má sjá í spilaranum hér að neðan.

Þá er Andy Burnham loksins kominn til Lundúna þar sem hann tekur formlega sæti á þingi fyrir Makerfield. Lestarferðinni frá Manchester seinkaði lítillega. Fjöldi fjölmiðla beið Burnham þegar hann kom á Euston-lestarstöðina í Lundúnum fyrir um 40 mínútum.

Hann ítrekaði yfirlýsingu sína síðan í morgun þar sem hann þakkaði Keir Starmer fyrir störf í þágu þjóðarinnar. Hann staðfesti einnig að hann ætlaði að bjóða sig fram sem leiðtogi flokksins og þá líklega nýi forsætisráðherra landsins.

Burnham var einnig spurður út í tíst frá 2022 þar sem hann kallaði eftir kosningum daginn sem Liz Truss sagði af sér sem forsætisráðherra.

„Ég held að þú sért komin fram úr þér, forgangsverkefni mitt í dag er að taka við þingsæti Makerfield,“ sagði Burnham.

Hann sagðist vera sorgmæddur yfir því að yfirgefa Manchester þar sem hann var borgarstjóri og sagðist vona að hann hefði skilið svæðið eftir betra en þegar hann tók við því. Búist er við að hann taki formlega sæti á þingi síðdegis þegar neðri málstofa breska þingsins kemur saman.

Það er ágætt í samhengi við fréttir dagsins að benda á að á morgun, 23. júní, eru tíu ár síðan Bretar greiddu atkvæði um úrgöngu úr Evrópusambandinu eftir tæplega 50 ára veru.

Brexit-atkvæðagreiðslan var haldin 23. júní 2016.

33.577.342 greiddu atkvæði og vildi 51,89 prósent fara úr sambandinu. David Cameron, sem þá var forsætisráðherra fyrir Íhaldsflokkinn en vildi vera áfram í ESB, sagði af sér daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Theresa May tók við embætti forsætisráðherra í júlí.

Síðan þá hefur engin lognmolla verið í kringum bresk stjórnmál og á þeim áratug sem liðinn er hafa sex verið í embætti forsætisráðherra. Með afsögn Keirs Starmers er ljóst að sjöundi forsætisráðherrann tekur við innan skamms.

Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu þakkar Keir Starmer fyrir stuðninginn í yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X.

„Keir, þakka þér fyrir samvinnuna, stuðninginn og sameiginlegar ákvarðanir sem hafa hjálpað að gera Evrópu og okkar öryggi sterkara. Bretland hefur verið, er og mun áfram verða leiðtogi í heiminum. Hér í Úkraínu metum við Bretland mikils og hvert samtal sem við höfum átt hefur alltaf verið innihaldsríkt.“

Hann bætti við að Starmer væri alltaf velkominn í heimsókn til Úkraínu. „Keir, þú ert alltaf velkominn sem gestur til Úkraínu.“

Kemi Badenoch, leiðtogi Íhaldsflokksins, spyr sig eftir hverju sé beðið eftir að Wes Streeting tilkynnti stuðning sinn við Andy Burnham.

„Ef þú ætlar ekki fram, eftir hverju bíðum við?“ spurði Badenoch og vitnaði í áætlun sem Starmer talaði um í ræðu sinni þegar hann sagði af sér.

Þar sagði hann tilnefningar fyrir framboð til leiðtoga flokksins opna 9. júlí og að hægt verði að bjóða sig fram í viku. Það sé gert þannig að ef leiðtogakjör fari fram verði kominn nýr leiðtogi þegar þing kemur aftur saman eftir sumarfrí, 1. september.

Lucy Powell, varaleiðtogi Verkamannaflokksins, segir flokkinn standa í þakkarskuld við Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra og leiðtoga flokksins. Hún segir Starmer hafa gert Verkamannaflokkinn kjörgengan á ný og „leitt okkur til stórsigurs í kosningum fyrir aðeins tveimur árum“.

Hann hafi haft umsjón með mikilvægum árangri síðan þá. Hann unni landi og þjóð og hafi djúpa þjónustu- og skyldutilfinningu. Hann hafi tilkynnt afsögn sína með reisn. Hún hvetur flokkinn til að koma saman og sýna þjóðinni hversu vel valdaskiptin geti verið framkvæmd.

„Við verðum að sýna fram á að framsækin stjórnmál geta breytt lífi fólks til hins betra og séu reiðbúin til að takast á við áskoranir sem við öll stöndum frammi fyrir. Ef okkur mistekst verða afleiðingarnar fyrir lýðræðið og þjónina miklar og hættulegar.“

Aðrir háttsettir innan flokksins hafa einnig lýst yfir stuðningi við Starmer eftir að hann tilkynnti afsögn sína. Shabana Mahmood innanríkisráðherra sagði Starmer hafa leitt flokkinn frá brúninni aftur til valda. Afreki hans verði aldrei gleymt.

Vinnumálaráðherra Bretlands, Pat McFadden, tók undir orð Powell og sagði bæði Verkamannaflokkinn og þjóðina standa í þakkarskuld við Starmer.

Ed Miliband orkumálaráðherra sagði yfirlýsingu Starmer fyrir utan Downingstræti sýna þá miklu reisn og ráðvendni sem einkenni hann.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur einnig brugðist við afsögn Starmers. Hún þakkar honum fyrir samstarf við ESB og vinnu hans við að styrkja öryggi Evrópu og Úkraínu.

„Það getur tekið leiðtoga mörg ár að vaxa í þann stjórnmálamann sem þú varðst á aðeins tveimur árum.“

Andy Burnham hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram sem næsti leiðtogi Verkamannaflokksins. Í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þakkar hann Keir Starmer fyrir störf í þágu þjóðarinnar.

Hann segir fólk vilja hagvöxt, lægri kostnað, betri innviði og tækifæri fyrir næstu kynslóðir. Breytingar á stjórnmálasviðinu megi aldrei draga athygli stjórnmálamanna frá þeirri ábyrgð að bæta líf fólks.

Fjölmiðlafár mætti Burnham á lestarstöðinni

Breskir fjölmiðlar greina frá því að Burnham sé á leið til Lundúna frá Manchester ásamt teymi sínu. Hann kom á Manchester Piccadilly-lestarstöðina fyrir skömmu og var umkringdur ljósmyndurum.

Sam Harrison, fréttamaður BBC, fylgir Burnham og teymi hans. Harrison segir Burnham vera í góðu skapi. Þegar hann spurði hvernig honum liði sagðist Burnham vera ánægður með að vera fulltrúi Makerfield og að það væri það eina sem hann einbeitti sér að.

Wes Streeting ætlar að styðja Andy Burnham í leiðtogakjöri Verkamannaflokksins. Hann sagði af sér sem heilbrigðisráðherra í síðasta mánuði í kjölfar sveitarstjórnarkosninga þar sem flokkurinn beið afhroð til að skora Starmer á hólm.

Streeting segir í yfirlýsingu að eftir sláandi ósigur í kosningunum í maí hafi aukakosningarnar í Makerfield sannað að Verkamannaflokkurinn geti enn unnið hafi flokksmenn hugrekki til að breytast. „Þetta var sigur fyrir samheldni og von frekar en sundrung og hatur.“

Streeting segir sigurinn ekki síður hafa verið Brunhams sjálfs. „Andy hefur sýnt hvað Verkamannaflokkurinn getur verið þegar við erum aðgengileg, sameinuð og í tengslum við líf fólksins sem þessi flokkur var stofnaður til að verða fulltrúi fyrir.“

Streeting segist hafa rætt mikið við Burnham síðustu daga og segist sannfærður um að hann geti byggt upp flokk sem sé aðgengilegur öllum, sem dragi það besta úr stjórnmálahefðum þjóðarinnar og að hann geti unnið baráttuna gegn öflum þjóðernishyggjunnar.

„Við gætum eytt sumrinu í að ræða um smámuni eða brett upp ermar og hjálpað honum að koma á fót þeim breytingum sem flokkurinn okkar og landið þarf. Það er ákvörðunin sem ég tek og ég vona að allir aðrir styðji Andy líka. Við vorum kjörin til að breyta landinu okkar, til að sýna að stjórnmál geti verið afl til góðs og til að skapa tækifæri fyrir alla. Með Andy getum við það enn.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

Nigel Farage, formaður Umbótaflokksins, Reform, vill kosningar við fyrsta tækifæri. Hann birti ritgerð á samfélagsmiðlinum X þar sem hann segir að það sé „fáránlegt að þykjast að Andy Burnham hafi einhvers konar umboð til að leiða landið.“

Reform laut í lægra haldi í aukakosningum í Makerfield í síðustu viku þar sem Burnham vann þingsætið. Hann fékk rétt tæplega 25 þúsund atkvæði á meðan frambjóðandi Reform fékk rétt rúmlega 15 þúsund atkvæði. Farage sagði Burnham verða forsætisráðherra á minna en 25 þúsund atkvæðum.

„Ég er ekki smeykur við Andy Burnham eða aðra skotspóna Verkamannaflokksins.“

Farage sagði Starmer óhæfasta forsætisráðherra sem Bretland hefði átt og sagði Burnham eiga eftir að halda áfram stefnumálum Starmers verði hann nýr leiðtogi flokksins.

Keir Starmer hefur tilkynnt afsögn sína úr embætti. En hvað nú?

Starmer sagði í ræðu sinni að opnað yrði fyrir tilnefningar fyrir nýjan leiðtoga 9. júlí og að lokað yrði fyrir þær áður en sumarfrí hefst, sem er viku síðar eða 16. júlí. Það tryggi að nýr leiðtogi verði kominn þegar þing kemur aftur saman eftir sumarfrí sem er 1. september.

Nick Eardley, fréttamaður hjá BBC, spáir í spilin. Hann segir að núna sé tækifæri fyrir Verkamannaflokkinn til að ræða nákvæmlega hvað gerist næst. Flestir þingmenn flokksins vilji leiðtogakjör og Andy Burnham sé langvinsælasti frambjóðandinn þar. Af hverju ætti einhver að bjóða sig fram gegn honum? spyr Eardley.

Wes Streeting sagði af sér sem heilbrigðisráðherra af því að hann ætlaði að skora Starmer á hólm en það hefur ekki enn gerst. Eardley segir nokkra bandamenn hans hafa viðurkennt að hann geri það kannski ekki. Mögulega fái hann stórt hlutverk í ríkisstjórn Burnham í staðinn.

Þó er ekki hægt að útiloka að einhver annar stígi fram. Angela Rayner hefur einnig verið nefnd í þessu samhengi sem og Ed Miliband, orkumálaráðherra og fyrrverandi leiðtogi flokksins. Nafn Shabana Mahmood innanríkisráðherra hefur einnig verið nefnt. En eins og staðan er núna þykir ansi líklegt að Burnham verði forsætisráðherra á næstunni.

Í spilaranum hér að neðan er hægt að horfa á þegar Starmer segir af sér. Áður var ótextuð útgáfa en nú hefur hún verið þýdd.

Verði Andy Burnham, nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins fyrir Makersfield, einn í framboði til leiðtoga flokksins má búast við að hann geti tekið við um miðjan júlí. Bjóði fleiri sig fram gæti nýr leiðtogi tekið við í lok ágúst.

Starmer hefur tilkynnt Karli Bretakonungi afsögn sína sem leiðtogi Verkamannaflokksins og falið flokksráði að hefja undirbúning fyrir leiðtogaval.

Hann mun gegna embætti forsætisráðherra þar til nýr leiðtogi Verkamannaflokksins verður valinn. Hann heitir nýjum leiðtoga fullan stuðning.

Keir Starmer ætlar að segja af sér sem leiðtogi Verkamannaflokksins. Þetta tilkynnti hann á blaðamannafundinum rétt í þessu.

Starmer hefur hafið ræðu sína.

Ræðupúlti forsætisráðherrans hefur verið komið fyrir og starfsfólk Downingsstrætis 10 er farið að safnast saman fyrir utan. Von er á forsætisráðherranum út á allra næstu mínútum samkvæmt heimildamanni BBC.

Hér er hægt að fylgjast með beinni útsendingu BBC.

BBC greinir frá því að starfsfólk Downingsstrætis 10 hafi hafið undirbúning fyrir blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan húsið.

Andy Burnham þykir líklegur arftaki Starmers. En hver er hann?

Burnham hefur verið borgarstjóri Manchester í níu ár. Hann var áður á breska þinginu sem fulltrúi Leigh á árunum 2001-2017. Hann hefur tvisvar sinnum boðið sig fram sem leiðtoga Verkamannaflokksins, 2010 og 2015, en tapað í bæði skiptin.

Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir birti þessa góðu samantekt um Burnham á dögunum.

The Guardian segir á forsíðu sinni að Starmer ætli að tilkynna um hvenær hann hverfi frá störfum og Daily Telegraph greinir frá því að Burnham ætli sér að verða forsætisráðherra Breta fyrir september.

The Independent vitnar svo í Donald Trump Bandaríkjaforseta sem sagði á samfélagsmiðlum í gær að Starmer ætli að segja af sér. Samkvæmt Downingstræti 10 hafa Starmer og Trump ekki talað saman um helgina.

BBC hefur tekið saman forsíður allra helstu dagblaða Bretlands í dag.

Góðan dag.

Augu heimsins verða að líkindum á Downingstræti 10 í London í dag. Búist er við því að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, tilkynni í dag hvort hann segi af sér embætti og þá hvenær hann víki.

Andy Burnham, fráfarandi borgarstjóri Manchester, vann þingsæti fyrir Verkamannaflokkinn með miklum meirihluta atkvæða í aukakosningum sem haldnar voru á fimmtudaginn og hann þykir líklegur arftaki Starmers.

Starmer hefur legið undir feldi um helgina og er sagður hafa ráðfært sig við fjölskyldu sína og fleiri um stöðu sína og næstu skref. Fjölmiðlar í Bretlandi fylgjast náið með framvindu mála og fjöldi fjölmiðlafólks er nú við Downingstræti 10.

#burnham #framboð #orðinn #staðfestir #þingmaður


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-22-burnham-stadfestir-frambod-ordinn-thingmadur-verkamannaflokksins-479034

📰 Aðrar fréttir

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 0
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 0
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 0
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 1
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 1
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
📅 25.09.2026 👁️ 1
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
„Gúgglið Oleshky. Það er umsátur um bæinn og þar er mannúðarkrísa. Það berast fregnir af því að fólk svelti og fái ekki mannúðaraðstoð, fái ekki mat e...
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að...
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
Einnig var hald lagt á búnað sem tilheyrði ræktuninni. Húsleitin mun hafa verið framkvæmd vegna gruns um að verið væri að rækta kannabisplöntur í húsi...
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
Lífið getur stundum verið fallegt í hversdeginum og þetta upplifði Sveinn Waage, leiðsögumaður með meiru, í vikunni þegar hann var djúpt snortinn af f...
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
📅 25.09.2026 👁️ 1
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Reta...
Frey sagt upp hjá Eflingu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Frey sagt upp hjá Eflingu
Frey Rögnvaldssyni var sagt upp sem upplýsingafulltrúa Eflingar í morgun, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins segir við Vísi að uppsögnin hafi ekkert að...
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
Maður sem starfaði á hvalveiðivertíð greinir frá því að unnið rúmlega 1000 klukkustundir á svokölluðum 8x8 vöktum, án fría. Katrín Oddsdóttir, lögmaðu...
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
📅 25.09.2026 👁️ 1
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
Experts say the hack could leave agents vulnerable to scams, blackmail and targeted attacks.
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 20...
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
📅 25.09.2026 👁️ 1
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, formað­ur Vinstri grænna, skrif­ar um kostn­að að­gerða­leys­is í lofts­lags­mál­um ...
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
Greint var frá átökum á milli sundþjálfara á Vísi í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á ko...
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
Það er kynlífsfræðingurinn og áhrifvaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir sem opnar sig um mál umboðsskrifstofu á samfélagsmiðlinum TikTok. Samkvæmt heimil...
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir ...
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
📅 25.09.2026 👁️ 1
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
Nicholas Brandram's family say he took his own life due to the "pressure" of a police investigation.
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
The former DUP leader was found guilty of 18 counts of child sex abuse, including one of rape, in June.
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
📅 25.09.2026 👁️ 1
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
There have been too many cases of staff abusing patient trust, and enough is enough, the head of the NHS in England says.
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
Freyr var kallaður á fund á morgun og honum sagt upp fyrirvaralaust. Vísir náði tali af Frey í morgun en hann sagðist ekkert geta tjáð sig um málið, þ...
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
📅 25.09.2026 👁️ 1
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
Cruise tourism in Lanzarote continues to grow strongly, with more than 413,000 passengers arriving in Arrecife between January and August this year.Fi...
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
📅 25.09.2026 👁️ 1
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í gær vegna manns með hníf og beitti hún pipar...
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, lét af embætti sem formaður stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga í dag og við tók Almar G...
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
📅 25.09.2026 👁️ 2
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
Two men have been arrested after the Guardia Civil uncovered a substantial cannabis growing and production operation at a property in Tacoronte, in th...
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segir umboðsskrifstofu og umboðsmann hérlendis grafa undan trúverðugleika áhrifavalda o...