Landspítalinn fór ekki að lögum þegar hann áminnti Tómas Guðbjartsson lækni vegna myndatöku og myndbirtingar. Þetta er niðurstaða Kristínar Benediktsdóttur, umboðsmanns Alþingis.
Landspítalinn áminnti Tómas fyrir að taka myndir af sjúklingi í hjartaþræðingarstofu spítalans og fyrir að birta mynd úr skurðaðgerð á Facebook-síðu sinni.
Umboðsmaður segir ákvörðun Landspítalans um áminningu ekki vera í samræmi við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Auk þess hafi málsmeðferðin verið verulegum annmörkum háð.
Vísir greindi fyrst fjölmiðla frá áliti umboðsmanns.
Spítalinn afþakkaði einnig vinnuframlag Tómasar vegna þessa. Umboðsmaður Alþingis segir að sú ákvörðun hafi hvorki samrýmst kröfum sem leiða megi af óskráðri meginreglu um meðalhóf né skýrleikareglu. Auk þess segir hún að tafir sem urðu á meðferð hluta máls Tómasar hjá Landspítalanum hafi ekki verið réttlætanlegar. Þær hafi því brotið gegn málshraðareglu stjórnsýslulaga.
Áfellisdómur yfir stjórnsýslu Landspítalans
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir að álitið sé ákveðinn áfellisdómur yfir stjórnsýslu Landspítalans.
„Það sem stendur upp úr þarna er að áminning á hendur Tómasi er talin tilefnislaus og í raun ólögmæt af umboðsmanni Alþingis og það eru ýmsar athugasemdir gerðar við ferlið í kringum veitingu þessarar áminningar. Auðvitað verður hún væntanlega dregin til baka en þá stendur eftir sú stjórnsýsla og atburðarás sem eru gerðar alvarlegar athugasemdir við. Það er mjög mikilvægt fyrir Tómas og annað starfsfólk Landspítalans að það sé tryggt að svona geti ekki endurtekið sig.“
Steinunn og Læknafélagið gera miklar athugasemdir við að Tómas hafi verið leystur frá störfum fyrirvaralaust.
Landspítalinn skoðar álitið
Í svari Landspítalans við fyrirspurn fréttastofu segir að stofnunin taki áliti Umboðsmanns Alþingis alvarlega og sé með það til ítarlegrar skoðunar.
Steinunn segir að Landspítali hafi boðið til fundar og gerir ráð fyrir að Tómas þiggi þann fund. Þar verði farið nánar í það hvernig hlutur hans verði réttur.
Fréttin hefur verið uppfærð.