Brotaþoli í Reykholtsmálinu gaf skýrslu fyrir dómi í dag. Um er að ræða eldri mann með maltneskt ríkisfang en hann er af palestínskum uppruna. Hann flutti til Íslands á árinu 2010 eða 2011 og hafði leigt húsnæði af einum sakborningnum, Sigurði Gunnari Ásgeirssyni, í um fjögur ár þegar atvik málsins áttu sér stað í apríl árið 2024.Lýsir brotaþoli því svo að hann hafi verið lagstur til svefns föstudaginn 19. apríl þegar fjórir aðilar komu inn á heimili hans, en dyrnar voru ólæstar þar sem brotaþoli hafði lært þann sið í sveitinni að þar læsi enginn dyrunum.
Brotaþola í Reykholtsmálinu gert að skola af sér blóðið áður en hann var farðaður - „Ég var í mjög slæmu ástandi“