Breska innanríkisráðuneytið gaf á miðvikudag út nýjan leiðbeiningabækling fyrir hælisleitendur þar sem farið er yfir lög, samfélagsleg viðmið og þá hegðun sem ætlast er til af fólki sem býr í Bretlandi.
Í bæklingnum, Understanding behaviours and expectations in the UK: a guide for asylum seekers, er meðal annars útskýrt að karlar og konur hafi jafnan rétt, að kynlíf án samþykkis sé nauðgun, að kynferðisleg samskipti við einstaklinga undir 16 ára aldri séu ólögleg og að heimilisofbeldi geti varðað fangelsisrefsingu.
„Lög og venjur hér kunna að vera öðruvísi en í heimalandi þínu,“ segir í inngangi bæklingsins sem breska Home Office birti 19. ágúst.
Konur þurfa ekki leyfi eiginmanns, föður eða bróður
Sérstakur kafli er helgaður jafnrétti kynjanna.
Þar er hælisleitendum útskýrt að konur megi vinna, afla eigin tekna, stunda nám, ferðast frjálsar, velja sér maka eða ákveða að giftast ekki og taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf.
„Konur þurfa ekki leyfi frá eiginmanni, föður, bróður eða öðrum karlmanni til að gera neitt af þessu,“ segir í bæklingnum.
Þá þykir sérstaklega ástæða til að taka fram að ekki megi banna konu að vinna eða stunda nám, stjórna því hvernig hún klæðir sig eða hvert hún fer, hindra samskipti hennar við vini og fjölskyldu eða taka ákvarðanir fyrir hana án samþykkis.
Útskýra hvað nauðgun er
Í kafla um kynlíf og samþykki er útskýrt að báðir aðilar verði að samþykkja kynferðisleg samskipti af frjálsum vilja.
Samþykki þurfi í hvert skipti, einnig innan hjónabands eða sambands, og einstaklingur geti dregið samþykki sitt til baka hvenær sem er.
Einnig segir að einstaklingur sem er sofandi, ölvaður eða ófær um að svara geti ekki veitt samþykki.
„Ef þú stundar kynlíf með einhverjum án samþykkis er það kallað nauðgun,“ segir í leiðbeiningunum.
Þá er sérstaklega tekið fram að lögaldur til kynlífs sé 16 ár og að kynlíf með einstaklingi undir þeim aldri sé alvarlegt brot, jafnvel þótt viðkomandi segist samþykk/ur.
Bæklingurinn kemur líka inn á heimilisofbeldi og hegðun á almannafæri. Þar segir meðal annars að ekki megi elta fólk, loka leið þess, gera kynferðislegar athugasemdir við ókunnuga eða flauta og gefa frá sér kossahljóð í átt að þeim.
Home Office segir tilgang bæklingsins vera að hjálpa hælisleitendum að skilja hvað sé ætlast til af þeim í Bretlandi og varar við því að brot á lögum geti meðal annars leitt til afskipta lögreglu, fangelsisvistar, missis á húsnæði og stuðningi og haft áhrif á hælisumsókn viðkomandi.
Netverjar hafa gert stólpagrín að bælingnum og líkt honum við dansinn fræga frá Finnlandi þar sem nokkrir embættismenn tóku sig til og sömdu dans sem átti að útskýra fyrir hælisleitendum þar í landi hvað mætti og mætti ekki.