38 ára bresk kona, Elisabeth-Jane Ross, ferðaðist til Grikklands þar sem hún tók þátt í hjálparstarfi fyrir afganska flóttamenn. Hún fannst síðar látin í ferðatösku í yfirgefinni byggingu í Aþenu og 26 ára afganskur flóttamaður hefur verið handtekinn vegna morðsins.
Maðurinn, Sharif Ahmadzai, hefur viðurkennt að hafa komið líki Ross fyrir í ferðatöskunni og flutt það í bygginguna en neitar að hafa orðið henni að bana. Hann er sakaður um manndráp, rán og brot á vopnalögum.
Ross var frá Edinborg og var kölluð Lisa af vinum sínum. Hún hafði um árabil tekið þátt í kristilegu hjálparstarfi og aðstoðað meðal annars afganska, íranska og sýrlenska flóttamenn.
Í Grikklandi starfaði hún meðal annars með samtökunum One Heart, sem veita afgönskum og írönskum flóttamönnum læknisaðstoð.
Fannst látin í ferðatösku
Lík Ross fannst 18. júlí eftir að heimilislaus maður varð var við mikla ólykt frá yfirgefinni byggingu í Aþenu.
Gríska lögreglan rannsakaði upptökur úr öryggismyndavélum og fann myndskeið sem virðist sýna Ahmadzai draga stóra ferðatösku eftir götum borgarinnar.
Lögreglan telur að Ross hafi verið komið fyrir í ferðatöskunni áður en hún var flutt í yfirgefnu bygginguna. Engin fingraför eða DNA sýni fundust utan á töskunni, sem lögregla telur benda til þess að reynt hafi verið að hylja slóðina.
Gögn réttarmeinafræðinga benda til þess að Ross hafi látist af völdum köfnunar.
Notaði bankakort hennar
Ahmadzai er einnig sakaður um að hafa notað bankakort Ross til að taka út þúsundir evra eftir dauða hennar.
Þá voru skilaboð send úr farsíma hennar til vina og fjölskyldu í um tvær vikur. Í einu þeirra var sagt að hún þyrfti tíma fyrir sjálfa sig og vildi vera ein um stund.
Faðir Ross, sem starfar sem lögmaður í Edinborg, sagðist hafa fengið nokkur slík skilaboð. Grískur lögreglumaður sagði ljóst að sá sem sendi þau hefði verið að reyna að kaupa sér tíma.
Slökkt var á símanum eftir að fjölmiðlar víða um heim hófu að fjalla um líkfundinn.
Eiginkonan lét lögreglu vita
Grunur féll á Ahmadzai eftir að bandarísk eiginkona hans, Alaina Hall, hafði samband við lögreglu vegna grunsamlegrar hegðunar hans.
Hjónin þekktu Ross í gegnum hjálparsamtökin Love Every Nation Athens. Hall varð tortryggin þegar eiginmaður hennar hvarf að heiman 15. júlí og staðsetning hans í sameiginlegu staðsetningarforriti sýndi að hann væri við íbúð Ross.
Hann er sagður hafa reynt að gefa eiginkonu sinni 2.550 evrur í reiðufé og nýjan iPhone síma. Hall afhenti lögreglu peningana og símann þar sem hún taldi að þeir hefðu verið keyptir fyrir fé sem stolið var frá Ross.
Við húsleit á heimili þeirra 1. ágúst fann lögregla eftirlíkingu af skammbyssu og stóran hníf.
Kom sjálfur til Grikklands sem flóttamaður
Ahmadzai kom til grísku eyjarinnar Lesbos á gúmmíbát árið 2016, þá 15 ára gamall. Samkvæmt eigin frásögn flúði hann Afganistan eftir að talibanar höfðu drepið fjölskyldu hans.
Ahmadzai hefur sjálfur starfað við hjálparstarf fyrir flóttamenn og er sagður vera meðstofnandi hjálparsamtaka. Hann vann einnig grískan landsmeistaratitil í hnefaleikum í mars.
Ross kom til Aþenu frá Edinborg 26. júní. Ættingjar hennar lýsa henni sem umhyggjusamri konu sem hafi helgað stóran hluta lífs síns því að aðstoða fólk í neyð, þar á meðal afganska flóttamenn í Grikklandi.