Andúð á auðugu fólki er sögð ein ástæða þess að leigubílstjórinn Jonathan Rinderknecht kveikti gróðurelda af ráðnum hug nærri Palasides-hverfinu í Los Angeles á seinasta ári. Rinderknecht er sakaður um að hafa kveikt eldana á gamlárskvöld 2025 í fjöllunum við Palasides-hverfið.
Slökkviliðsmenn héldu sig hafa kveðið þá niður en þeir blossuðu upp að nýju 7. janúar með þeim afleiðingum að tólf fórust í hverfinu og víðfeðm byggð rándýrra glæsihúsa frægs og ríks fólks gereyðilagðist.
Alls týndi að minnsta kosti 31 lífi í eldunum sem geisuðu um Los Angels þennan janúarmánuð fyrir rúmu ári. Rinderknecht, sem var handtekinn á Flórída snemma í október, hefur verið ákærður og kemur fyrir dóm 8. júní.
Saksóknarar lýsa hinum ákærða í dómsskjölum sem Uber-bílstjóra sem hatast við auðvaldsskipulagið og dáir Luigi Mangione, sem ákærður er fyrir morð á forstjóra tryggingafyrirtækis.
Tveimur vikum áður en eldarnir kviknuðu sýnir netleitarsaga Rinderknechts setningar á borð við „fellum alla milljarðamæringana“ og slagorðið „frelsum Luigi Mangioni“.
Margir lýsa Mangioni sem nútíma Hróa hetti sem berst gegn spilltu kerfi vinnandi fólki til hagsbóta. Rinderknecht, sem ólst upp í Frakklandi og bjó um tíma í Palasides, neitar öllum sakargiftum.