Karlmaður var fluttur í skyndingu á sjúkrahús í Austin, höfuðborg Texas, í gær eftir að liðsmaður innflytjendastofnunar Bandaríkjanna skaut hann í búkinn, að sögn á flótta. Ástand mannsins er sagt stöðugt.
Atvikið hefur valdið mikilli reiði meðal ráðamanna í ríki og borg sem krefjast ítarlegrar rannsóknar. Borgarstjórinn, demókratinn Kirk Watson, segir það mikil vonbrigði að annað eins skuli hafa gerst í Austin þar sem aðgerðir stofnunarinnar færðust í aukana nánast á augabragði fyrir fáeinum vikum.
Borgaryfirvöld vilja ekki að svo stöddu greina frá nafni, aldri eða þjóðerni þess sem skotinn var og innflytjendastofnunin hefur ekkert sagt. Watson sagði afar óviðeigandi að stofnunin kæmi ein að rannsókninni og þingmaðurinn Greg Casar tók í sama streng með þeim rökum að hún hefði ekki sagt satt um önnur tilvik þar sem fulltrúar hennar beittu skotvopnum.
Þar vísaði þingmaðurinn Casar meðal annars til þess þegar liðsmaður ICE skaut Renee Nicole Goode til bana í Minneapolis í janúar. Myndskeið af því atviki hrakti frásögn stofnunarinnar um að hún hefði reynt að aka á alríkisfulltrúann sem skaut hana. Casar rifjaði jafnframt upp að hann og fleiri hefðu viljað sjá fulltrúana hverfa á brott frá Austin áður en þeir skytu einhvern.
Donald Trump hét því í kosningabaráttunni áður en hann var endurkjörinn forseti að vísa milljónum ólöglegra innflytjenda úr landi.
Hann hefur gripið til fjölda harðra aðgerða síðan hann tók við embætti sem miðuðu að því að flýta fyrir brottvísunum og draga úr komum fólks yfir landamærin. Næstum 51.000 ólöglegir innflytjendur voru handteknir í Bandaríkjunum í ágúst, samkvæmt tölum frá innanríkisráðuneytinu.
Þungvopnaðir og oft grímuklæddir starfsmenn innflytjendastofnunarinnar, sem hafa það verkefni að framfylgja aðgerðum Trumps, hafa mætt mikilli gagnrýni um allt land fyrir ofbeldisfullar aðferðir, þar á meðal skotárásir á bandaríska ríkisborgara.
Meðal þeirra er Ruben Ray Martinez, 23 ára gamall maður sem ICE-liði skaut í mars 2025. Það segir Texas Tribune hafa verið í fyrsta skipti sem innflytjendafulltrúar drápu bandarískan ríkisborgara á öðru kjörtímabili Trumps.