Hildur Björnsdóttir borgarstjóri lagði fram tillögu á fundi borgarráðs í morgun um sérstaka niðurgreiðslu á matarþjónustu fyrir tekjulága eldri borgara. Notendur matarþjónustu Reykjavíkurborgar undir skilgreindu tekjuviðmiði muni samkvæmt því greiða 1.500 kr. fyrir máltíð í stað 1.900 kr.
Fulltrúar meirihlutans í velferðarráði Reykjavíkurborgar hafa samþykkt tillögu um gjaldskrárhækkun á máltíðum og heimsendum mat í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum frá og með 1. september.
Heimsend máltíð á hverjum degi kostar eldri borgara í Reykjavík 200.000 krónum meira á ári eftir verðhækkanir borgarinnar. Formaður Félags eldri borgara sagði í kvöldfréttum í gær að hækkunin væri eins og köld vatnsgusa.
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, segir í tilkynningu að þrátt fyrir almennar hækkanir á máltíðum fyrir eldri borgara séu heimsendar máltíðir enn hagstæðari í Reykjavík en í ýmsum nágrannasveitarfélögum.
Meirihlutinn lagði jafnframt til að borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar greiði 1.900 kr. fyrir máltíðir hjá borginni sem er nær tvöföldun frá fyrra gjaldi.
„Samhliða teljum við nauðsynlegt að borgarfulltrúar líti sér nær og taki á sig gjaldskrárhækkun sjálfir,“ er haft eftir borgarstjóra í tilkynningu.