Söngkonan og Íslandsvinurinn Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Fram kemur í tilkynningu frá fjölskyldu hennar að hún hafi látist á sjúkrahúsi í Portúgal.Tyler var flutt á sjúkrahús í Faro í Portúgal í maí síðastliðnum þar sem hún undirgengst bráðaaðgerð á þörmum og ákváðu læknar að henni skyldi haldið sofandi á meðan hún næði bata. Hún vaknaði úr dái um miðjan júní en náði aldrei bata. Tyler ætlaði að halda tónleikaferðalag í sumar, var þeim svo frestað fram á haust.
Bonnie Tyler látin