Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Eimskips og Sjómannafélag Íslands hafa gert með sér samkomulag vegna hafnarverkafólks í Sundahöfn. Með undirritun samkomulagsins er boðuðu verkfalli SÍ sem hefjast átti 26. maí 2026 aflýst.
Samkomulagið felur í sér að viðræðum um gerð kjarasamnings er frestað til 31. október 2026 meðan unnið er að hæfnigreiningu hafnarstarfa. Friðarskylda gildir á tímabilinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar.
Samhliða er hafist handa við innleiðingu á formlegu hæfnilaunakerfi fyrir hafnarverkafólk. Kerfið mun byggja á hlutlægri greiningu starfa þar sem hæfni, færni og ábyrgð starfsfólks skapar grundvöll fyrir skilvirkari launasetningu og skýrari launaþróun. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mun annast röðun starfa í hæfniþrep á grundvelli íslenska hæfnirammans.
Miðað er við að innröðun í nýtt kerfi verði lokið fyrir 25. október næstkomandi.