Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks - DV

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks - DV

Hinn 24. janúar 2024 var stytta af einum dáðasta Íslendingi síðustu aldar felld af stalli sínum á horni Lækjargötu og Amtmannsstígs þar sem hún hafði staðið frá árinu 1955. Aðdragandi málsins er flestum í fersku minni — fjaðrafokið sem varð í kjölfar útkomu ævisögu séra Friðriks Friðrikssonar eftir Guðmund Magnússon sagnfræðing. Þar birtist frásögn þar sem eignuð er ónafngreindum heimildarmanni sem Guðmundur kallar „Kristin“. Samkvæmt frásögninni sem ekki er nákvæm á séra Friðrik að hafa leitað á viðkomandi þegar hann var ungur að árum en séra Friðrik var á þeim tíma orðinn háaldraður og líklega alblindur. Þessi frásögn stendur ein og sér og var notuð sem aðalefni kynningar á bókinni í bókmenntaþættinum Kiljunni í Ríkissjónvarpinu.

Í sagnfræðideild Háskóla Íslands var okkur kennt að setja ekki á blað viðkvæm atriði nema hafa að minnsta kosti tvær óháðar og áreiðanlegar heimildir. Birtingar umræddrar sögu einnar og sér má því teljast varasöm fræðilega þó svo að slegnir séu varnaglar. En í bók Guðmundar er líka ýjað að ýmsu tengdum meintum löngunum Friðriks til drengja, jafnvel án þess að nokkurt tilefni sé til slíkra vangaveltna. Guðmundur dregur til að mynda víðtækar ályktanir af innilegu og ástríku tali í bréfum séra Friðriks. Þetta efni hefur allnokkuð verið rannsakað hérlendis. Meðal annars hefur Sigrún Sigurðardóttir sagnfræðingur skrifað um rómantíska vináttu karla á nítjándu öld. Hún segir vináttusambönd karlmanna á þeim tíma hafi meira að segja ekki einasta falið í sér kærleiksrík orð í bréfum heldur líka daður og kjass sem enginn hafi séð neitt athugavert við.

Ricard er enn á sínum stað

Í áðurnefndum Kiljuþætti spyr Egill Helgason sjónvarpsmaður Guðmund um Olfert Ricard, einn helsta forystumann KFUM í Danmörku um aldamótin 1900 og náinn vin séra Friðriks. Egill orðaði það svo í spurningunni að Ricard hefði verið „tekinn niður af stalli sínum“. Guðmundur svarar:

„… já, það má kannski segja það. Danir, það má segja að ég geri það á róttækari hátt heldur en er búið að gera í Danmörku þó að hans nafn hafi svolítið dalað í Danmörku á undanförnum áratugum, en það kemur auðvitað í ljós að hann er … hans áhugi beinist mikið að unglingsstrákum og mörgum finnst þetta svolítið óþægilegt hvað áhuginn er mikill og danskur prestur fullyrðir við mig að hann hafi heimildir fyrir því að hann hafi misnotað unga pilta.“

Brjóstmynd Ricards stendur enn við Garnisonkirkju í Kaupmannahöfn og ekki að sjá að ásakanir viðlíka þeim sem þarna eru nefndar hafi komið upp í danskri umræðu. Ekki er skrýtið að „nafn“ Ricards „hafi svolítið dalað“ enda hefur hann legið í gröf sinni í 97 ár. Heimild Guðmundar um að Ricard hafi misnotað unga pilta eru orð eins ónafngreinds dansks heimildarmanns.

Óvönduð stjórnsýsla

Málið rataði inn í sali Ráðhússins og svo fór að borgarráð tók þá ákvörðun á fundi sínum hinn 23. nóvember 2023 að fjarlægja minnismerkið um séra Friðrik sem staðið hafði á horni Lækjargötu og Amtmannsstígs frá árinu 1955. Þá lá ekki fyrir skýrsla sú um málið sem KFUM hafði óskað eftir og raunar hafði málið ekki fengið neina yfirvegaða umfjöllun. Stjórnmálamennirnir í borgarstjórn Reykjavíkur hröpuðu allir að einföldustu ákvörðuninni sem ætla mætti að gleddi lýðinn. Ekki er það lofsverð eða ábyrg stjórnsýsla.

Einum dáðasta Íslendingi síðustu aldar hafði þar með verið steypt af stalli og hann skyndilega stimplaður kynferðisafbrotamaður. Þetta vekur upp áleitnar spurningar um hvernig rétt sé að umgangast söguna: Hversu viðamiklar og áreiðanlegar heimildir þurfi að vera svo unnt sé að fella dóma um menn og málefni? Í réttarríki gildir sú meginregla að menn teljist saklausir uns sekt er sönnuð. En hvað með látna menn? Eftir því sem lengra líður frá meintum afbrotum verður vitaskuld örðugra að færa sönnur á hvað gerst hefur. Þá er ekki heldur hægt að útiloka rangar sakargiftir líkt og dæmin sanna erlendis frá.

Sögusöfnun KFUM

KFUM og KFUK, félögin sem séra Friðrik stofnaði, birtu heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu 5. nóvember 2023 þar sem fram kom að þau hefðu leitað til séra Bjarna Karlssonar og Sigrúnar Júlíusdóttur félagsráðgjafa. Yrði þeim falið það hlutverk að ræða við „þolendur og vitni sem tengst gætu hugsanlegum brotum gegn kynferðismörkum barna og ungmenna af hálfu séra Friðriks Friðrikssonar“ eins og það var orðað. Athygli vekur að séra Bjarni skyldi hafa fenginn til verksins þar sem hann hafði í viðtali við Kastljós Ríkissjónvarpsins nokkrum dögum fyrr sagt umrætt mál vera „mar á þjóðarlíkamanum“ sem þyrfti að hreinsa. Erfitt er að sjá hvernig hann gat talist hlutlægur rannsakandi í ljósi þess að hann hafði haft uppi svo gildishlaðnar yfirlýsingar.

Skýrsla séra Bjarna og Sigrúnar til stjórnar KFUM og KFUK hefur ekki fengist birt opinberlega. Hún hefur þó borist ýmsum. Þar er aðeins að finna eina frásögn frá fyrstu hendi og eina frásögn eftirlifandi eiginkonu auk tveggja annarra frásagna um látna menn. Séra Bjarni ræddi við Guðmund Magnússon og bað hann að koma þeim skilaboðum til heimildarmanns síns, svonefnds „Kristins“, að þau Sigrún vildu gjarnan ná af honum tali. Maðurinn hafði ekki samband.

Af þessum takmörkuðu upplýsingum drógu Sigrún og séra Bjarni þá ályktun „að meiri líkur en minni“ væru á „að háttsemi séra Friðriks hafi í sumum tilvikum farið yfir kynferðisleg velsæmismörk gagnvart ungum drengjum og valdið þeim skaða“. Þrátt fyrir að slegnir séu varnaglar er fullyrt að nú hafi „hulunni verið svipt af óviðeigandi háttsemi séra Friðriks gagnvart ungum drengjum á síðustu öld með staðfestum dæmum“.

Í kjölfarið sendu KFUM og KFUK frá sér yfirlýsingu hinn 20. desember 2023 þar sem fram kemur „að fleiri vitnisburðir, sem væru hafnir yfir skynsamlegan vafa, sýndu að séra Friðrik Friðriksson, stofnandi félaganna, hefði áreitt drengi kynferðislega og farið yfir mörk þeirra“. Þarna er notast við lögfræðilegt orðalag, að eitthvað sé „hafið yfir skynsamlegan vafa“ en við blasir að þær frásagnir sem fyrir liggja dygðu vart til útgáfu ákæru í sakamáli hvað þá refsidóms kæmu þær fram nú enda um margt óljósar. Leiðir það meðal annars af hlutlægniskyldu ákæruvalds; sé uppi vafi í sakamáli skal hann túlkaður sakborningi í hag.

Að kvöldi 20. desember, voru Tómas Torfason, framkvæmdastjóri KFUM og KFUK, og Sigrún Júlíusdóttir, annar skýrsluhöfunda, gestir Kastljóss Ríkissjónvarpsins. Í þættinum sagði Tómas að frásögn bókar Guðmundar hafi komið stjórn félaganna „algjörlega í opna skjöldu“ og í kjölfarið orðið einhugur um það meðal stjórnarfólks að „leiða málið til lykta“. Málið verður þó trauðla „leitt til lykta“. Alltént ekki í einni sviphendingu. Sigrún fullyrti í viðtalinu að ekki færi „milli mála“ að „brotin“ hefðu verið framin. Aðspurð neitaði hún þó að tilgreina fjölda þeirra sem haft höfðu samband við þau séra Bjarna, en tók þó fram að upplýsingarnar væru „nánast alfarið ekki frá fyrstu hendi. Ekki frá þolendum heldur aðstandendum þeirra, eiginkonur og dætur sem hafa haft samband“. Samt sem áður sagði hún að „full ástæða“ væri til að ætla að „að þolendur séra Friðriks séu enn fleiri en komið hefur fram“.

Skýrsla KFUM fól ekki í sér eiginlega rannsókn heldur var sögum safnað. Framkvæmdastjóri félagsins komst engu að síður svo að orði laust fyrir jólin 2023 að skýrslan sýndi það „hafið yfir allan vafa að séra Friðrik hafi farið yfir eðlileg mörk í samskiptum við börn“ og bætti því við að ásýnd „séra Friðriks væri því sködduð“ og hygðist KFUM ekki nota nafn hans sem „vörumerki“. Orðalag framkvæmdastjóra KFUM og KFUK vekur óneitanlega athygli; séra Friðrik sé í huga stjórnar félaganna „vörumerki“ líkt og þau séu ekkert annað en framleiðendur einhvers varnings á markaði. Vitaskuld verður arfleifð af þessu tagi ekki afmáð og þær rætur sem hér um ræðir svo djúpar og margþættar að með engu móti verður jafnað við „vörumerki“; slíkt jaðrar við kjánaskap.

Málið er óupplýst

Frá sjónarhóli sagnfræðinnar verða ekki dregnar neinar öruggar ályktanir út frá umræddum frásögnum eingöngu. Viðmælandi Guðmundar Magnússonar hefur ekki komið fram og aðeins ein frásögn í skýrslu þeirri sem unnin var fyrir KFUM mun vera frá fyrstu hendi og aðrar þá endursagnir. Fálm og þreifingar séra Friðriks verður líka að skoða í því ljósi að hann var orðinn aldurhniginn og líklega alblindur.

Rétt væri að stjórn KFUM og KFUK gerði skýrslu séra Bjarna og Sigrúnar opinbera, legði fram öll gögn málsins, sem raunar eru rýrari að vöxtum en látið hefur verið í veðri vaka.  En yrðu heilindi séra Friðriks enn dregin í efa að því loknu væri rétt að taka gögnin og málið til frekari meðferðar og gaumgæfa hvort tveggja frá sjónarhóli lögfræðinnar og sagnfræðinnar. Við slíka athugun þyrfti að gæta þess að öll hugsanleg sjónarmið kæmu fram — jafnvel þannig að efnt yrði til rökræðu fyrir opnum tjöldum, þar sem mætti hugsa sér að valinkunnir lögmenn tækju að sér málflutning. Einungis vandleg rannsókn og rökræða getur fært okkur niðurstöðu í þessu máli, niðurstöðu sem samboðin er siðmenntuðu menningarríki.

#björn #jón #mikil #skrifar #skömm


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/3/bjorn-jon-skrifar-mikil-er-skomm-borgarstjornar-mali-sera-fridriks/

📰 Aðrar fréttir

Sinueldur á Kjalar­nesi - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Sinueldur á Kjalar­nesi - Vísir

„Ég held að þeir séu um það bil að klára þetta,“ segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einungis þurfti að senda...
„Þitt vanda­mál er að þú skilur ekki stéttar­fé­lög“ - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

„Þitt vanda­mál er að þú skilur ekki stéttar­fé­lög“ - Vísir

Orð Björns Brynjúlfs Björnssonar framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs um verkalýðsfélög hafa fallið í grýttan jarðveg hjá fulltrúum félaganna. Björn var með...
Gervigreindin gæti haft á­hrif á ESB-atkvæðagreiðsluna - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Gervigreindin gæti haft á­hrif á ESB-atkvæðagreiðsluna - Vísir

Þetta var á meðal þess sem hann minntist á í viðtali um gervigreind í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. „Ég held að það sé mjög vert að staldra aðeins v...
Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar - DV

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er virk á Facebook og birtir oft myndir úr safni sínu frá síðustu árum og áratugum. Svo var einnig á laugardag þegar þe...
Staðan enn góð hjá málurum en blikur á lofti fyrir haustið
📅 01.01.1970 👁️ 1

Staðan enn góð hjá málurum en blikur á lofti fyrir haustið

Formaður Málarameistarafélagsins telur stöðu greinarinnar góða eins og er en að blikur séu á lofti eftir sumarið. Formaður félags pípulagningameistara...
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar - DV

Leigusamningar geta verið tímabundnir eða ótímabundnir, þ.e. gerðir til ákveðins tíma eða ekki. Í síðasta pistli fjallaði ég um uppsögn ótímabundinna ...
Guðleg forsjón
📅 01.01.1970 👁️ 0

Guðleg forsjón

Guðleg forsjón Það var að áliðnu kvöldi fyrir skömmu að Donald Trump var að fikta við eitthvað gervigreindarforritið …  ég hef svosem ekki hugmynd um ...
„Mjög sterk öfl alltaf tilbúin til þess að reyna að kroppa í öll áunnin réttindi“
📅 01.01.1970 👁️ 1

„Mjög sterk öfl alltaf tilbúin til þess að reyna að kroppa í öll áunnin réttindi“

„Fólk áttar sig á því að það sem áunnist hefur er fljótt að glutrast niður ef við erum ekki í varðstöðu til að verja það áfram. Það eru mjög sterk öfl...
„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“ - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“ - DV

„Það er mikilvægt að átta sig á því að útlendingar sem flytja til Íslands, langflestir eru komnir hingað til að vinna og bæta sitt líf. Rífa sig upp f...
Brott­hvarf banda­rískra her­manna veiki ekki NATO í Evrópu - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Brott­hvarf banda­rískra her­manna veiki ekki NATO í Evrópu - Vísir

Donald Trump tilkynnti fyrir helgi að þúsundir hermanna Bandaríkjanna í Þýskalandi yrðu kallaðir heim. Þetta var eftir að Friedrich Merz kanslari Þýsk...
Hefur þú gert mistök? - Ragnhildur er með ráð við því - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Hefur þú gert mistök? - Ragnhildur er með ráð við því - DV

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar....
Eftir­lit lög­reglu og utan­ríkis­ráð­herra um breytingar á her­afla í Þýska­landi - Vísir
Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti
📅 01.01.1970 👁️ 0

Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti

Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti ForsíðaFréttir Tweet Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokk...
Two dead and major incident declared after Frenchay explosion
📅 01.01.1970 👁️ 1

Two dead and major incident declared after Frenchay explosion

Two dead and major incident declared after explosion13 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleBeth CruseandAndrew Segal,West of EnglandBBCEmerg...
„Þessi munur er sláandi“
📅 01.01.1970 👁️ 1

„Þessi munur er sláandi“

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, segir verðmun á loðnu á Íslandi og í Færeyjum sláandi. Í svari ráðherra við fyrirspurn Eydísar Ásbjörns...
Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“ - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“ - DV

Ingibjörg Dögg Kristinsdóttir lést í kajakslysi í Skorradalsvatni síðastliðinn miðvikudag, 44 ára að aldri. Inga, eins og hún var kölluð, skilur eftir...
Zack Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response
📅 01.01.1970 👁️ 1

Zack Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response

Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response2 hours agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRichard WheelerPolitical ...
Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá
📅 01.01.1970 👁️ 0

Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá

Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá Mynd: KinoMasterskaya/Shutterstock Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá en eiginmaður hennar, Vésteinn Valgar...
Inga Dögg lést á Skorra­dals­vatni - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Inga Dögg lést á Skorra­dals­vatni - Vísir

Eiginmaður hennar, Vésteinn Valgarðsson, greinir frá þessu í færslu á Facebook. „Inga varð 44 ára. Ástin í lífi mínu, lífsförunauturinn minn. Ég fékk ...
Vilja slaka á kröfum um endurnýjun ökuréttinda eldri borgara
📅 01.01.1970 👁️ 1

Vilja slaka á kröfum um endurnýjun ökuréttinda eldri borgara

Ökumenn 65 ára og eldri þurfa að endurnýja ökuréttindin á eins til fimm ára fresti - og árlega eftir áttrætt. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður ...
Two killed and major incident declared after Frenchay explosion
📅 01.01.1970 👁️ 1

Two killed and major incident declared after Frenchay explosion

Two killed and major incident declared after explosion13 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleBBCPolice and paramedics are among emergency se...
Engar handtökur í samkvæmi Hells Angels
📅 01.01.1970 👁️ 5

Engar handtökur í samkvæmi Hells Angels

Enginn var handtekinn þegar lögregla fylgdist með samkomu í félagsheimili Vítisengla í Auðbrekku í Kópavogi frá því fyrir klukkan sex í gær. Samkvæmt ...
Lögðu hald á eggvopn og fíkni­efni en hand­tóku engan - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Lögðu hald á eggvopn og fíkni­efni en hand­tóku engan - Vísir

„Við höfðum fregnir af samkomu í aðsetri þeirra í Auðbrekku í Kópavogi og það var sett upp ákveðið aðgerðaskipulag sem við höfum viðhaft áður í samkom...
Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum - DV

Stjórnarandstaðan leggst þvert gegn öllum málum sem ríkisstjórnin kemur með inn í þingið, stundar jafnvel málþóf og tafir við afgreiðslu mála sem full...
Zack Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack
📅 01.01.1970 👁️ 1

Zack Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack

Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack45 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRichard WheelerPolitical repo...
Verka­lýðs­fé­lög, gervi­greind og Landeyjahöfn í Sprengi­sandi - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Verka­lýðs­fé­lög, gervi­greind og Landeyjahöfn í Sprengi­sandi - Vísir

Fyrstur verður Hafsteinn Einarsson til að ræða gervigreind. Umræðan um Mythos gervigreindarlíkan Anthropic fyrirtækisins var engu lík, líkanið var tek...
Náttúruafl og aðgerðasinni í heila öld
📅 01.01.1970 👁️ 1

Náttúruafl og aðgerðasinni í heila öld

Hann hefur farið með okkur niður á hafsbotn, að kjarna jarðar, inn í myrka frumskóga og upp í hæstu trjákrónur. Leitt okkur að náttúrunni í öllum sínu...
Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans? - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans? - DV

Minnihlutaflokkarnir á Alþingi, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn, eru líklegir til að vilja vinna saman nái þeir meirihluta í komandi borgar...
Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef - DV

Framboð Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi kynnti í gær stefnuskrá sína og helstu áherslumál fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. ...
Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu - DV

Níu íslensk frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu hafa hlotið styrki frá Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga, til að vinna að nýsköpun í matvælaiðna...
Erlendir aðgerðarsinnar koma fyrir ísraelska dómstóla
📅 01.01.1970 👁️ 0

Erlendir aðgerðarsinnar koma fyrir ísraelska dómstóla

Tveir aðgerðarsinnar, sem reyndu að sigla með hjálpargögn á Gaza-svæðið, koma fyrir ísraelskan dóm í dag. Þeir eru frá Spáni og Brasilíu og voru flutt...
Eigendur Sóltúns handteknir
📅 01.01.1970 👁️ 2

Eigendur Sóltúns handteknir

Eigendur Sóltúns handteknir Hjúkrunarheimilið Sóltún Mynd: Sóltún Í fyrra samþykkti embætti Skattsins beiðni eigenda Öldungs hf., móðurfélags hjúkruna...
Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans
📅 01.01.1970 👁️ 0

Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans

Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans28 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRobert GreenallBBC NewsGett...
Úti­lokar ekki frekari hernaðar­að­gerðir eða að fleiri her­menn fari heim - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Úti­lokar ekki frekari hernaðar­að­gerðir eða að fleiri her­menn fari heim - Vísir

Í frétt Guardian um málið segir að Íranir segi boltann hjá Trump og að ólíklegt sé að hann samþykki nýjustu tillöguna um frið. Í fréttinni segir að ti...
Ókennilegt flygildi yfir Finnlandi
📅 01.01.1970 👁️ 1

Ókennilegt flygildi yfir Finnlandi

Finnski flugherinn varð í rauðabítið var við að ókennilegt flygildi sveimaði innan lofthelginnar yfir Virolahti nærri landamærunum að Rússlandi. Í yfi...
Norðanátt og stöku él
📅 01.01.1970 👁️ 1

Norðanátt og stöku él

Fremur hæg norðanátt verður ráðandi í dag með stöku éljum og hita í kringum frostmark á Norðaustur- og Austurlandi. Um landið vestanvert verður hitinn...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi - DV

Sú sem þetta skrifar hefur á undanförnum vikum, oftar en einu sinni, heyrt stjórnmálaskýrendur segja að Viðreisn muni mjög líklega verða í oddastöðu í...
Transumræða fjarlægð úr íbúahópi á Seltjarnarnesi – „of heit kartafla“
📅 01.01.1970 👁️ 0

Transumræða fjarlægð úr íbúahópi á Seltjarnarnesi – „of heit kartafla“

Transumræða fjarlægð úr íbúahópi á Seltjarnarnesi – „of heit kartafla“ ForsíðaFréttir Tweet Screenshot Heitar deilur brutust út í Facebook-hópnum Íbúa...
Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins
📅 01.01.1970 👁️ 0

Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins

Í lok nóvember í fyrra samþykkti embætti Skattsins að heimila eigendum fyrirtækisins Öldungs hf., sem er móðurfélag hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Rey...
Heill heimur í íslenskum fornbréfum
📅 01.01.1970 👁️ 0

Heill heimur í íslenskum fornbréfum

Heill heimur í íslenskum fornbréfum „Ég hef nú lifað þannig lífi að það hafa orðið miklar sviptingar og ýmislegt sem hefur breytt lífi mínu. Mig langa...
Fjórir hand­teknir vegna fjögurra líkams­á­rása - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 0

Fjórir hand­teknir vegna fjögurra líkams­á­rása - Vísir

Í dagbók kemur annars fram að mikill erill hafi verið hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Alls hafi 99 mál verið skráð hjá lög...
Lög­regla með virkt eftir­lit við af­mæli Hell's Angels - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 0

Lög­regla með virkt eftir­lit við af­mæli Hell's Angels - Vísir

Greint var frá því í gær að samtökin væru að halda upp á fimmtán ára afmæli sitt og var lögregla með töluverðan viðbúnað við Auðbrekku þar sem afmælið...
Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu
📅 01.01.1970 👁️ 1

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu Háholt 3 Glæsilegt og afar rúmgott einbýlishús við Háholt 3 í Garðabæ hefur verið sett á sölu.Um er að ræða 386,...
Um það bil 40 þúsund mættu á teknótónlistarviðburð í óleyfi
📅 01.01.1970 👁️ 0

Um það bil 40 þúsund mættu á teknótónlistarviðburð í óleyfi

Talið er að um 40 þúsund hafi mætt á teknótónlistarviðburð sem haldinn var í leyfisleysi í frönsku borginni Bourges í gærkvöld.Borgaryfirvöld litu svo...
Á­fram­haldandi norðan­átt og stöku él - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 0

Á­fram­haldandi norðan­átt og stöku él - Vísir

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur svo fram að á morgun, mánudag, sé útlit fyrir áframhaldandi norðanátt með éljum um landið norðanvert. Strekkingsvin...
Ferðamaður á nærfötunum fann ekki hótelið sitt aftur
📅 01.01.1970 👁️ 1

Ferðamaður á nærfötunum fann ekki hótelið sitt aftur

Annir voru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og í nótt að því er segir í morgunskeyti.Erillinn virðist hafa verið mestur í miðborg og ve...
Einn lét lífið í umfangsmikilli drónaárás á Kherson
📅 01.01.1970 👁️ 0

Einn lét lífið í umfangsmikilli drónaárás á Kherson

Einn lét lífið og fjórir særðust í drónaárás Rússlandshers á borgina Kherson í Úkraínu í nótt. Hernaðaryfirvöld í borginni greindu frá þessu í morgun....
Man charged over Australian Outback death of 5-year-old girl
📅 01.01.1970 👁️ 1

Man charged over Australian Outback death of 5-year-old girl

Man charged with murder and sexual assault of 5-year-old Australian girl1 hour agoShareSaveAdd as preferred on GoogleHarry SekulichReutersWarning for ...
Sérstakri nefnd fólgið að endurskoða fyrri umferð forsetakosninganna
📅 01.01.1970 👁️ 0

Sérstakri nefnd fólgið að endurskoða fyrri umferð forsetakosninganna

Yfirkjörstjórn í Perú hefur ákveðið að hefja ítarlega endurskoðun á fyrri umferð forsetakosninga sem haldnar voru fyrir þremur vikum. Sérstakri nefnd ...
How we reported in -30C temperatures in Canada's Arctic
📅 01.01.1970 👁️ 1

How we reported in -30C temperatures in Canada's Arctic

How we reported in -30C temperatures in Canada's ArcticThe BBC joined Canada's military rangers on the final leg of a 5,200km (3,200 miles) Arctic pat...