Viðræður um lýðræðisleg stjórnarskipti í Venesúela hófust í gær milli fulltrúa bráðabirgðastjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar. Markmiðið er að endurreisa lýðræðislegar stofnanir, skipa trúverðugt kjörstjórnarráð (CNE) og undirbúa frjálsar forsetakosningar.
Einnig stendur til að ræða viðbrögð við mannskæðum jarðskjálftum sem riðu yfir Venesúela 24. júní. Athygli vekur að stjórnarandstöðuleiðtoganum og Nóbelsverðlaunahafanum Mariu Corina Machado var ekki boðin þátttaka heldur leiðir Dinorah Figuera samninganefnd stjórnarandstöðunnar.
Machado kveðst alls ekki munu standa í vegi fyrir viðræðunum sem hún telur verða til þess að endurvekja lýðréttindi landsmanna.
Figuera fór fyrir sigri stjórnarandstöðunnar í þingkosningum 2015 sem alþjóðasamfélagið álítur síðustu frjálsu kosningarnar í Venesúela og flúði til Spánar eftir að hafa sætt ofsóknum og hótunum leyniþjónustunnar. Jorge Rodriguez, forseti þingsins, er lykilmaður í ríkisstjórninni og samninganefnd hennar.
Hann er bróðir Delcy Rodriguez sem hefur verið forseti Venesúela frá því bandarískir hermenn handsömuðu Nicolas Maduro í janúar. Figuera kveðst munu leggja sérstaka áherslu á endurnýjun innan hæstaréttar og kjörstjórnarráðsins sem staðfestu kjör Maduros í afar umdeildum kosningum árið 2024.
AFP-fréttaveitan segir fulltrúana hafa hist í La Carlota-herstöðinni og að eingöngu ljósmyndarar megi vera viðstaddir.
Utanríkisráðuneytið bandaríska segir mikil tækifæri felast í viðræðunum enda mikilvægt að koma á stöðugleika og sátt með friðsamlegum stjórnarskiptum. Fulltrúar beggja fylkinga lýstu bjartsýni um niðurstöður að loknum fyrsta degi viðræðnanna.