Fulltrúar bráðabirgðastjórnarinnar í Venesúela og stjórnarandstöðunnar um lýðræðisleg stjórnarskipti hófust í gær. Markmiðið er að endurreisa lýðræðislegar stofnanir, skipa trúverðugt kjörstjórnarráð og undirbúa frjálsar forsetakosningar.
Einnig stendur til að ræða viðbrögð við mannskæðum jarðskjálftum 24. júní. Athygli vekur að stjórnarandstöðuleiðtoganum og Nóbelsverðlaunahafanum Mariu Corinu Machado var ekki boðin þátttaka heldur leiðir Dinorah Figuera samninganefnd stjórnarandstöðunnar.
Machado kveðst alls ekki munu standa í vegi fyrir viðræðunum sem hún telur verða til þess að endurvekja lýðréttindi landsmanna.
Figuera fór fyrir sigri stjórnarandstöðunnar í þingkosningum 2015 sem alþjóðasamfélagið álítur síðustu frjálsu kosningarnar í Venesúela. Hún flúði til Spánar eftir að hafa setið undir ofsóknum og hótunum leyniþjónustunnar. Jorge Rodriguez, forseti þingsins, er lykilmaður í ríkisstjórninni og samninganefnd hennar.
Hann er bróðir Delcy Rodriguez sem hefur verið forseti Venesúela síðan bandarískir hermenn handsömuðu Nicolas Maduro í janúar. Figuera kveðst munu leggja sérstaka áherslu á endurnýjun innan hæstaréttar og kjörstjórnarráðs sem staðfestu kjör Maduros í afar umdeildum kosningum árið 2024.
AFP-fréttaveitan segir fulltrúana hafa hist í La Carlota-herstöðinni og að eingöngu ljósmyndarar megi vera viðstaddir.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna segir mikil tækifæri felast í viðræðunum enda mikilvægt að koma á stöðugleika og sátt með friðsamlegum stjórnarskiptum. Fulltrúar beggja fylkinga lýstu bjartsýni um niðurstöður að loknum fyrsta degi viðræðnanna.