Allvíðáttumikil lægð austur af landinu veldur stífri norðvestanátt í dag. Suðaustan- og austanlands verða vindhviður hvassar við fjöll. Í athugasemd veðurfræðings segir að aðstæður geti orðið varasamar fyrir þá sem ferðast um á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
Það verður úrkomusamt og fremur svalt á Norðaustur- og Austurlandi en bjart með köflum í öðrum landshlutum og hiti fer í 18 til 20 stig þegar best lætur sunnan- og vestanlands.
Á morgun er útlit fyrir svipað veður, þó dregur úr vætunni seinni partinn og vindur verður ívið hægari en í dag.
Áfram norðlæg átt á sunnudag með strekkingi austast en hægari vindi annars staðar. Víða léttskýjað, en yfirleitt skýjað norðaustan til á landinu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast sunnan heiða.