Bjarki Þorsteinsson verður sveitarstjóraefni annars framboðsins í Hvalfjarðarsveit, en ekki beggja eins og áður hafði komið fram. Hann segir ástæðuna vera framgöngu hins listans í ræðu og riti í kosningabaráttunni.
Um miðjan apríl tilkynnti framboðslistinn Samhent sveit, A-listinn í Hvalfjarðarsveit, að Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri í Dölum, yrði sveitarstjóraefni listans að loknum kosningum. Tveimur dögum síðar tilkynnti Íbúahreyfingin, Í-listinn og hitt framboðið í Hvalfjarðarsveit, að Bjarki yrði einnig þeirra sveitarstjóraefni.
Viku síðar sagði Bjarki á samfélagsmiðlum að hann hafi tilkynnt fulltrúum Í-listans að hann væri ekki tilbúinn að vera sveitarstjóraefni Í-listans. Honum hugnist ekki orðræða og framganga fulltrúa Í-listans sem beinst hafi persónulega gegn oddvita A-listans, Haraldar Benediktssonar. Bjarki verður áfram sveitarstjóraefni A-listans.
Eitt af kosningamálum í Hvalfjarðarsveit snýr að mögulegri sameiningu við nágrannasveitarfélög. Í fyrra vildi Akraneskaupstaður skoða sameiningu við Hvalfjarðarsveit. Samhliða sveitarstjórnarkosningum fer fram íbúakosning í Hvalfjarðarsveit um mögulegar sameiningar við nágrannasveitarfélög.
Íbúahreyfingin sér ekki tilefni til að sameinast öðrum sveitarfélögum. Haraldur sem starfaði sem sveitarstjóri í Akraneskaupstað þar til hann tilkynnti framboð í Hvalfjarðarsveit, hefur gagnrýnt hörkuna í umræðunni fyrir kosningar.
Í kjölfar yfirlýsingar Bjarka tilkynnti Íbúahreyfingin að staða sveitarstjóra yrði auglýst og að ráðning færi fram á faglegum forsendum.
Bjarki hefur sinnt stöðu sveitarstjóra í Dalabyggð síðan 2022. Hann var í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum.