Bensínstöðvum fækkar hratt í Noregi og frá 2020 hefur að meðaltali tíu bensínstöðvum verið lokað í hverjum mánuði, eða 430 bensínstöðvum samkvæmt frétt Nettavisen.
Norska ráðgjafafyrirtækið Menon Economics áætlar að aðeins 730 bensínstöðvar verði í Noregi árið 2034. Þetta er mikil fækkun frá þeim 1.200 stöðvum sem voru í landinu árið 2012. Og það er af sem áður var, en alls voru um 4.000 bensínstöðvar í Noregi árið 1969.
Margir aka vissulega enn um á bensín- og dísilbílum en nú er svo komið að nær allir nýskráðir bílar eru rafbílar.
Nettavisen vísar í tölur frá norsku hagstofunni þar sem fram kemur að í lok síðasta árs voru 677.625 bensínbílar skráðir í Noregi, 950.404 dísilbílar og 945.185 rafbílar. Þá voru skráðir 208.467 endurhlaðanlegir hybrid-bílar og 162.449 óendurhlaðanlegir hybrid-bílar.
Norska varnarmálarannsóknarstofnunin hefur áhyggjur af því að þessi fækkun bensínstöðva veiki viðbragð ef það verður erfitt að nálgast eldsneyti. Geir Pollestad, þingmaður Miðflokksins, hefur einnig áhyggjur af stöðunni, bæði fyrir almenning og neyðarviðbragð í landinu.