Til stóð að halda fundinn í hátíðarsal Háskóla Íslands en sagði Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, að háskólinn hefði neitað honum um afnot af salnum þar sem ekki hafi verið greint frá því að viðburðurinn væri á vegum Áfram Íslands, samtaka sem berjast fyrir því að niðurstaða kosninganna verði nei.
Sjá nánar: Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar
Ragnar Árnason, prófessor við HÍ sem bókaði salinn, sagði það ekki rétt að um væri að ræða pólitískan fund og sakaði rektor um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar.
Að endingu var ákveðið að halda fundinn í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll í miðbæ Reykjavíkur.