Farþegabáturinn Skúlaskeið RE strandaði við sunnanverða Akurey í Kollafirði í morgun. Sextán farþegar voru um borð en þeir voru fljótlega fluttir í annan bát.
„Þetta eru góðar aðstæður. Eins og alltaf er björgunarskip kallað út og gæslan er með vökul augu á þessu,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að tilkynning um að báturinn hefði siglt upp á grjót hafi borist rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Hann segir engar sjáanlegar skemmdir hafa verið á honum.
Vonast er til að báturinn komist á flot þegar aftur fellur að seinnipartinn.