Ultimate Fighting Championship, eða UFC, hélt stórkostlegt bardagakvöld á lóð Hvíta Hússins í gærkvöldi og fór kvöldið fram úr jafnvel björtustu vonum.
Donald Trump, sem var heiðursgestur kvöldsins, hafði lagt mikið upp úr því að halda kvöldið á lóð Hvíta Hússins í tilefni 250 sjálfstæðisafmælis Bandaríkjanna. Mikið var um stjörnufans og fyrir þá sem fylgjast með MMA voru bardagarnir heldur ekki af verri endanum.
Það sem var óvenjulegt var að bardagarnir voru haldnir utanhúss, sem bauð í raun upp á að allt gæti farið úrskeiðis. En allt gekk eins og í lygasögu og enginn bardagi fór í dómaraákvörðun og allir enduðu þeir með rothöggi.
Úrslit:
Diego Lopes vann Steve Garcia með rothöggi í annarri lotu.
Bo Nickal vann Kyle Daukaus með rothöggi í fyrstu lotu.
Mauricio Ruffy vann Michael Chandler með rothöggi í fyrstu lotu.
Josh Hokit vann Derrick Lewis með rothöggi í annarri lotu.
„Sugar“ Sean O’Malley vann Aiemann Zahabi með rothöggi í annarri lotu.
Aðalbardagar kvöldsins:
Titilbardagi í þungavigt:
Ciryl Gane vann Alex Pereira með rothöggi í annarri lotu.
Titilbardagi í léttvigt:
Justin Gaethje vann Ilia Topuria eftir að sá síðarnefndi kom ekki af stól sínum í fimmtu lotu.
Blaðamaður hefur fylgst með blönduðum bardagaíþróttum í tæp 20 ár og fullyrðir að ekkert kvöld hafi komist nálægt þessu, hvorki hvað varðar gæði bardaga, andrúmsloft eða hvernig til tókst.