Skipið Bandero er væntanlegt til hafnar á lokuðu hafnarsvæði í Reykjavík á níunda tímanum. Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn skipsins og handtóku skipstjóra þess í gærkvöld eftir atvik við hvalveiðiskipið Hval 9.
Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni óskaði áhöfn Hvals 9 eftir aðstoð eftir að hún taldi öryggi sínu ógnað. Paul Watson-samtökin sögðu í gær að Bandero hefði siglt utan í Hval 9 og að hvalveiðiskipið hefði þá hætt veiðum og snúið til hafnar. Jafnframt hafi skipstjóri Bandero ekki hlýtt fyrirmælum Landhelgisgæslunnar.
Landhelgisgæslan staðfesti að Bandero hefði nálgast Hval 9 og reynt að trufla för þess, en hefur ekki staðfest frásögn samtakanna.
Paul Watson sagði í myndskeiði sem birt var fyrir klukkustund að skipverjum Bandero hefði tekist að koma í veg fyrir hvalveiði Hvals 9 í gærkvöldi áður en skipið var tekið yfir af Landhelgisgæslunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar, varðskip og þrír hraðbátar hefðu komið að aðgerðinni. Watson hafði ekki heyrt frá skipverjum síðan skipið var tekið yfir.
Þegar Bandero kemur til hafnar færist málið frá Landhelgisgæslunni yfir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem tekur það til rannsóknar.
Málið er í þróun. Þegar fréttastofa náði tali af Ásgeiri Þór Ásgeirssyni, aðstoðarlögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, sagðist hann lítið geta tjáð sig um málið og að hann hefði ekki upplýsingar um hver sakarefnin væru.
Spurður um hvort viðbúnaður yrði mikill þegar skipið leggur við höfn sagði Ásgeir verið að fara yfir það og undirbúa aðgerðir.
„Við erum að skipuleggja það út frá þeim rannsóknaraðgerðum sem við þurfum að fara í.“
Samkvæmt Gunnari Tryggvasyni, hafnarstjóra Faxaflóahafna, kemur Bandero til hafnar á afgirtu svæði sem er lokað almenningi.