Forstjóri Matvælastofnunnar sakar forstjóra Hvals um að afvegaleiða umræðuna með persónulegum árásum. Hún segir ummælin dæma sig sjálf og tekur fram að það hafi ekki áhrif á sig þó að námsferill hennar sé dreginn í svaðið.
Þeir fimmtíu vændiskaupendur sem lögregla náði á mynd í júní eru aðeins dropi í hafið, að sögn teymisstjóra Bjarkarhlíðar. Hún segir að aðgerðir sem þessar hafi mikinn fælingarmátt gagnvart kaupendum.
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í Ankara fer fram í skugga mannskæðra árása Rússa á Kænugarð. Sérfræðingur í varnar- og öryggismálum segir ljóst að Nató muni staðfesta áframhaldandi stuðning við Úkraínu.