Atli Fannar Bjarkason, þáttastjórnandi Morgunútvarpsins á Rás 2, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um að konur vandi sig síður við að raða vel í uppþvottavélina. Ummælin voru látin falla í þættinum síðasta föstudag þar sem Atli Fannar og Guðrún Dís Emilsdóttir, Gunna Dís, voru að fara yfir fréttir vikunnar.
Þá sagði Atli Fannar: „Ég vil ekki vera leiðinlegur en er þetta ekki fyrst og fremst vandamál kvenna að raða vitlaust í vélina?“
Gunna Dís brást við samstundis: „Jesús minn!“
Atli Fannar: „Mér finnst eins og það séu fyrst og fremst karlar sem vanda sig við þetta.“
Gunna Dís: „Nei. Þú ert að tala út frá þínu heimili augljóslega.“
Atli Fannar: „Ég hef séð þetta á TikTok og víðar, þetta er bara svona universal dæmi. Konur eru allavega að tapa í þessari áróðursbaráttu.“
Brást öllum kynjum sem kunna að raða í uppþvottavél
Atli Fannar sendi frá sér yfirlýsingu á Facebook í dag þar sem hann biðst innilegrar afsökunar á kíminn máta en augljóst er að hann sækir sér fyrirmynd í afsökunartilkynningar um alvarlegri mál.
„Í Morgunútvarpinu á Rás 2 síðastliðinn föstudag fullyrti ég að óhagstæð röðun leirtaus í uppþvottavélar væri fyrst og fremst vandamál kvenna. Af orðum mínum mátti ráða að konur kunni ekki að raða í uppþvottavélar eins vel og og önnur kyn og að þessi meinta vankunnátta væri til sérstakra vandræða á heimilum landsins. Ekkert er fjarri raunveruleikanum,“ segir Atli Fannar.
„Konur eru fullfærar um að raða í uppþvottavélar jafn vel og önnur kyn og það var vanhugsað af mér að lýsa öðru yfir. Mér til varnar þá sagði ég: „Ég vil ekki vera leiðinlegur“ áður en ég lýsti þessu yfir — eitthvað sem ég get aðeins vonað að hafi gert hlustendum ljóst að ætlun mín var ekki að vera leiðinlegur við neinn.“
Fleiri karlmenn í sömu sporum
Hann segir að í kjölfar orða sinna hafi rignt yfir hann skilaboðum frá öðrum karlmönnum með sambærileg vandamál á sínum heimilum, það er að segja að konur á heimilum kunni ekki að raða vel í uppþvottavél.
„ Þá er þetta viðfangsefni vinsælt á meðal spéfugla á samfélagsmiðlum, sem birta myndbönd þar sem hæfileikar kvenna á þessu sviði eru settir í spaugilegt ljós. Ég virðist hafa fallið ofan í þessa kanínuholu og látið glepjast af áróðri sem er ekki í neinum tengslum við raunveruleikann. Á því vil ég biðjast afsökunar,“ segir hann.
„Ég brást ekki bara konum, sem ásamt öðrum kynjum eru fullfærar um að raða vel í uppþvottavélar. Ég brást móður minni, eiginkonu og ekki síst dóttur.“
Þá vill hann að gerð verði óháð úttekt á málinu, en stjórn RÚV hefur einmitt gefið út að gerð verði óháð úttekt á verkferlum og gæðastjórnun á fréttastofunni og við dagskrárgerð.
„Ég hef farið fram á að óháð úttekt verði gerð á störfum mínum í Morgunútvarpinu á Rás 2 til að koma í veg fyrir að þessi mistök endurtaki sig og fullyrði að ummælin endurspegla ekki þannig mann sem ég er og vil vera. Takk fyrir að hlusta.“