Ráðist var á tankskip úti fyrir ströndum Lima í Óman í nótt. Tjón varð á vélarrúmi en bresk siglingastofnun segir að enginn hafi særst.
Íranar hafa stöðvað nær allar siglingar um Hormússund. Skip þurfa leyfi Írana og að greiða tolla til að sigla um sundið. Íranski byltingarvörðurinn hefur ráðist á og stöðvað fjölda skipa á siglingu. Íranar halda því fram að þeir hafi náð fullri stjórn á Hormússundi.
Siglingaeftirlitsfyrirtækið Kpler segir í færslu á X að dregið hafi verulega úr siglingum um sundið.