Andrými fékk Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026, sem afhent voru af Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra í Höfða fyrr í dag. Andrými fékk verðlaunin fyrir einstakt framtak sjálfboðaliða sem útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að skipuleggja baráttu fyrir auknu jafnrétti og frelsi jaðarsettra hópa.
Mannréttindaverðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasamtökum og stofnunum sem hafa staðið vörð um mannréttindi á árinu á eftirtektarverðan hátt. Mannréttindaráð staðfesti á fundi sínum tillögu valnefndar um að Andrými hlyti verðlaunin, sem nema 600.000 krónum.
Elí Hörpu- og Önundarbur tók við verðlaununum fyrir hönd Andrýmis. Elí segir verðlaunin mikilvæg fyrir Andrými og þá mikilvægu vinnu sem þar fer fram. „Í Andrými er lögð áhersla á að sporna gegn einmanaleika og félagslegri einangrun með því að rækta mannleg tengsl og skapa tækifæri til þátttöku og samveru til dæmis með opnu húsi, tungumálakennslu, sjálfskipulögðum stuðningshópum og ýmiss konar námskeiðum.”
Samfélagið í Andrými samanstendur af ótal mismunandi samfélagshópum sem að sögn Elís hefðu mögulega aldrei fengið tækifæri til að kynnast, en fyrir vikið hafa þau öðlast dýpri skilning á veruleika hver annars.
Aðgengisviðurkenning Reykjavíkurborgar var afhent við sama tækifæri, en Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir hlaut hana fyrir að beita sér fyrir vitundarvakningu og bættu aðgengi barna og unglinga með taugafjölbreytileika að námi.
Jóhanna byggir nálgun sína á fræðilegri þekkingu auk persónulegrar reynslu til að skapa lausnir sem styðja við nemendur í menntakerfinu.