Bragi Hannesson fv. bankastjóri lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí, á 94. aldursári.
Bragi fæddist 10. desember 1932 í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum. Foreldrar hans voru Hannes Pálsson, skipstjóri og síðar forstjóri Hampiðjunnar, og Ásdís Þorsteinsdóttir húsfreyja.
Bragi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953, embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1958 og öðlaðist hdl.-réttindi 1959. Hann var framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna 1958-63 og jafnframt framkvæmdastjóri Meistarasambands byggingarmanna 1961-63, var bankastjóri Iðnaðarbanka Íslands hf. 1963-90 og forstjóri Iðnlánasjóðs 1990-98.
Bragi sat í stjórn Orators og var ritstjóri Úlfljóts 1954-55, ritstjóri Tímarits iðnaðarmanna 1958-63, var varaformaður Heimdallar 1955-56, sat í stjórn SUS 1956-61, í stjórn Varðar 1966-71. Hann var í borgarstjórn 1966-70 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og átti sæti í stjórnum nokkurra borgarstofnana sama kjörtímabil.
Bragi var endurskoðandi Iðnaðarbankans 1960-63, sat í framkvæmdastjórn Norræna iðnþróunarsjóðsins 1970-95 og var formaður hans 1970-79 og 1982-85 og formaður stjórnar Iðntæknistofnunar 1978-1980. Hann átti að auki sæti í stjórnum fjölmargra sjóða, stofnana og fyrirtækja, m.a. í stjórn Hampiðjunnar og Granda.
Bragi naut tilsagnar í myndlist hjá Hring Jóhannessyni um árabil, hélt nokkrar einkasýningar og tók þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis á árunum 1975-1993. Bragi var jafnframt mjög áhugasamur um skógrækt og var skógarbóndi á jörðinni Lækjarbrekku í Gnúpverjahreppi, sem hann festi kaup á árið 1999.
Eiginkona Braga var Ragnheiður Gunnarsdóttir, f. 1933, d. 2020. Dætur þeirra eru Ragnheiður, prófessor emerita í lögfræði við Háskóla Íslands, f. 1956, Ásdís, textíl- og jógakennari, f. 1958, og Bryndís píanókennari, f. 1968. Barnabörnin eru sex og langafabörnin fimm.
Útför Braga fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn
16. júlí klukkan 13.