Sérfræðingur þessi heitir Eivind Grøv og prófessor og aðalvísindamaður hjá norsku rannsóknarstofnunninni SINTEF. Hann er einni aðjúnkt við NTNU-háskólann í Þrándheimi.
Samkvæmt tilkynningu frá Eyjagöngum hefur Grøv rúmlega fjörutíu ára reynslu af jarðgangagerð og bergverkfræði. Hann hefur einnig unnið með Íslendingum í mörg ár og var meðal annars tæknilegur ráðgjafi Spalar hf. við hönnun og framkvæmd Hvalfjarðarganga.
Þar að auki var kallaður til sem óháður sérfræðingur í deilunefnd vegna Vaðlaheiðar- og Norðfjarðarganga og verið ráðgjafi við gerð allra fjögurra neðansjávarganga í Færeyjum.
„Við erum afar ánægð með að hafa tryggt okkur krafta Eivinds Grøv. Reynsla hans af neðansjávargangagerð er einstök á heimsvísu og þekking hans á framkvæmd mannvirkja sem þessara gerir hann að tilvöldum ráðgjafa fyrir Eyjagöng“ segir Haraldur Pálsson hjá Eyjagöngum ehf. í áðurnefndri tilkynningu.
Grøv mun starfa sem tæknilegur ráðgjafi Eyjaganga ehf. og veita umsagnir um hönnun, rannsóknir og önnur tæknileg atriði sem verkfræðistofur á vegum félagsins leggja fram.