Sólmyrkvi á Íslandi í ágúst gæti orðið á versta tíma út frá efnahagslegu sjónarmiði, segir greiningardeild Landsbankans í nýrri Hagsjá. Fyrir þessu færir hún tvenns konar ástæður. Annars vegar að sólmyrkvinn verði þegar ferðamenn eru flestir og því sé minni ábati af fjölgun ferðamanna en á öðrum tímum. Hins vegar gæti brugðið til beggja vona með verðbólgumælingar þegar ræðst hvort forsendur kjarasamninga halda eða ekki.
Greiningardeildin segir að gera megi ráð fyrir straumi erlendra ferðamanna auk þess sem fjöldi Íslendinga geri sér ferð vestur til að njóta betra útsýnis.
„Færri munu komast að en vilja og því töluverður verðþrýstingur á þá þjónustu sem ferðalangar kaupa. Verð á flugfargjöldum til landsins, gistingu og bílaleigu er töluvert hærra dagana í kringum sólmyrkvann, en mikið er uppbókað nú þegar. Auk þess má búast við aukinni ásókn í veitingaþjónustu og ásókn í tjaldstæði á þeim svæðum þar sem sólmyrkvinn sést.“
Hægt er að virkja endurskoðunarákvæði kjarasamninga ef verðbólga verður meiri en 4,7 prósent í ágúst. Stjórnvöld hafa lækkað virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið til að bregðast við eldsneytishækkunum á heimsmarkaði og til að draga úr líkum á að endurskoðunarákvæði virkist.
„Það er ekki óþekkt að stórir viðburðir hafi áhrif á verðmælingar,“ segir greiningardeild Landsbankans. „Taylor Swift áhrifin eru vel þekkt, en á þeim stöðum þar sem hún heldur tónleika hefur það alla jafna í för með sér töluverða aukna staðbundna veltu í ferðaþjónustu. Hótel fyllast og veitingastaðir finna fyrir aukinni eftirspurn og því kemur ekki á óvart að verð á þeirri þjónustu hækki, jafnvel svo mikið að það hafi áhrif á verðbólgumælingar.
Greiningardeildin segir töluverðar líkur á því að sólmyrkinn hafi áhrif á verðbólgumælingar í ágúst enda verður hann í miðri verðbólgumælingarviku.