Tugir þúsunda bíða spenntir eftir sjónarspilinu mikla, sólmyrkvanum, næstkomandi miðvikudag. Upplifunin mun óhjákvæmilega markast mjög af veðrinu, heiðskír himinn er óskastaðan en dumbungur öllu verri, að ekki sé minnst á svargráa og regnbólgna kólgubakka. En það er ekki bara veðrið sem hefur áhrif á upplifun fólks á almyrkvanum - hann hefur líka áhrif á veðrið.
Það kólnar, vind getur lægt - en hann gæti líka aukist, ýmsar aðstæður spila þar inn í, segir Trausti Jónsson, sem rannsakað hefur áhrif sólmyrkva á hita og vind. Og rétt eins og skýin geta eyðilagt upplifun og ánægju fólks af sólmyrkva, þá getur sólmyrkvinn leyst upp skýin, sérstaklega skúraklakka.
Áhrifin á vindinn eru lítil og vísindamönnum gengur erfiðlega að finna meinta sólmyrkvalægð, sem er svo ræfilsleg - ef hún er þá til - að hún er enn bara fræðilegt hugtak eða vangavelta, segir Trausti. Það gæti verið í þann mund að breytast, því gerðar verða veðurathuganir einu sinni á hverri sekúndu á meðan sólmyrkvinn miðvikudaginn 12. ágúst stendur yfir. Hvort það dugir til að finna þessi „drög að lægð“ á svo eftir að koma í ljós.
Það á líka við um svarið við stóru spurningunni: Hvar verða aðstæður bestar til að fylgjast með myrkvanum langa? Trausti segir of snemmt að spá fyrir um það - og breyturnar í raun of margar til að hægt sé að slá nokkru föstu um það fyrr en á reynir. Sjálfur hyggst hann ekki elta spár, heldur sitja sem fastast heima í Borgarnesi, þar sem aðstæður til sólmyrkvaskoðunar eru hinar ágætustu.
Rætt var við Trausta Jónsson í Speglinum. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild í spilaranum hér að neðan.