Bergþór Karlsson, einn eigenda og fyrrverandi framkvæmdastjóri Hölds, bílaleigu Akureyrar, segir allt hafa gengið vel fyrir sig hjá bílaleigum við Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir stóran dag í dag. Unnið hafi verið hörðum höndum að undirbúningi, enda var fjölmenni að yfirgefa landið eftir sólmyrkvadaginn í gær.
„Við fengum inn fólk á aukavakt til að hjálpa okkur, fólk var að vakna klukkan hálf fimm í morgun til þess að koma og hjálpa okkur og það skiptir öllu máli fyrir okkur.“
Aldrei séð annað eins í flugstöðinni
Annað var þó uppi á teningnum í brottfararsal flugstöðvarinnar en langar raðir mynduðust í morgunsárið þegar straum ferðafólks bar að garði. Bergþór segist ekki muna eftir öðru eins ástandi.
„Það var bara allt í kássu. Menn voru að reyna, það var búið að búa til einhverjar raðir og þetta voru sniglaraðir sem náðu úr brottfararsal og inn í komusal, aftur til baka upp í brottfararsal og aftur inn í komusal og aftur inn í vopnaleit eins og fólk getur rétt ímyndað sér.“
Raðirnar náðu einnig úr fyrir Leifsstöð en biðraðir mynduðust á gangstígnum við langtímabílastæðin við flugstöðina.
Viðbúið að svipaðar aðstæður skapist í fyrramálið
Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir fimmtudaga þegar vera þunga daga á flugstöðinni en að sólmyrkvaumferðin hafi bætt við álagi.
„Fjöldamargir ferðamenn sem voru að koma til landsins á síðustu dögum og vikum til þess að sjá almyrkvann, þessi fjölmenni hópur eða hluti hans var að fara úr landi í morgun.“
Hann segir að það hafi tekið um tvær klukkustundir að leysa úr röðinni og að nú sé hefðbundin umferð á flugstöðinni. Búast má við svipaðri umferð á morgun og mega því farþegar vera viðbúnir einhverri bið.
„Það er viðbúið að svipaðar aðstæður geti skapast í fyrramálið þar sem að það er búist við að það gæti verið annar hópur eða aðrir hópar af ferðalöngum sem voru hér að berja almyrkvann augum.“