Tveir úr áhöfn skipsins Fitburg, sem Finnar stöðvuðu á gamlársdag vegna gruns um skemmdarverk á sæstrengjum, hafa verið ákærðir. Skipstjórinn, sem er annar hinna ákærðu, er rússneskur. Hinn er frá Aserbaísjan.
Meint skemmdarverk voru framin sama dag. Skipið var á leið frá Rússlandi til Ísraels þegar finnska strandgæslan stöðvaði það. Þá höfðu tveir strengir í Finnska flóa skemmst. Þetta er eitt af mörgum ætluðum skemmdarverkum á sæstrengjum í Eystrasalti sem grunur leikur á að séu hluti af fjölþáttaárásum Rússa gegn Vesturlöndum. Skipið er talið hluti af rússneska skuggaflotanum, sem tekur þátt í slíkum árásum.
Drógu akkeri 130 kílómetra
Mennirnir eru að sögn saksóknara ákærðir fyrir að hafa notað akkeri skipsins til að skemma strengina tvo og jafnframt reynt að skemma átta strengi í viðbót með því að draga akkerið 130 kílómetra leið áður en það var stöðvað. Þetta hafi valdið töluverðu tjóni og aukið verulega hættu á truflunum á fjarskiptum, rafmagni og gasdreifingu.
Sakborningarnir neita sök. Þeir bera meðal annars fyrir sig að skemmdirnar hafi átt sér stað í efnahagslögsögu Eistlands og því hafi Finnar enga lögsögu í málinu.
Verið er að reka sambærilegt mál í Finnlandi vegna flutningaskipsins Eagle S, sem átti að hafa skemmt fimm sæstrengi í Finnska flóa á jóladag. Héraðsdómur Helsinki úrskurðaði þá að Finnar ættu ekki lögsögu í málinu, heldur Cook-eyja, þar sem skipið sigldi undir fána þess lands. Saksóknarar áfrýjuðu niðurstöðunni en áfrýjunardómstóll hefur ekki úrskurðað í því.