Ákærð fyrir að njósna um vinnufélaga

Ísafjörður er á VestfjörðumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Visit Westfjords
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur gefið út ákæru á hendur konu sem sökuð er um brot gegn friðhelgi einkalífs eftir að hafa komist yfir og dreift einkaskilaboðum milli starfsmanna á vinnustað.
Samkvæmt ákærunni á atvikið sér stað í desember árið 2024 þegar konan fór inn á starfsstöð og skráði sig inn á tölvu með aðgangsupplýsingum annars einstaklings. Ekki er gefið upp hvar hún starfaði.
Þar kemur fram að konan hafi hlustað á og lesið einkaskilaboð sem fóru á milli viðkomandi einstaklings og annarra starfsmanna. Þá er henni gefið að sök að hafa afritað skilaboðin og miðlað þeim áfram til annarra starfsmanna.