Áhrifavaldur sem lést eftir heimafæðingu hafnaði ítrekað læknisaðstoð

Ástralski áhrifavaldurinn Stacey Hatfield lést af völdum mikillar blæðingar eftir heimafæðingu þar sem enginn ljósmóðir eða heilbrigðisstarfsmaður var viðstaddur. Þetta kom fram við rannsókn dánardómstóls sem nú fer fram vegna andláts hennar.
Samkvæmt gögnum sem lögð voru fram fyrir dómstólnum hafnaði Hatfield, sem var þrítug að aldri, læknisaðstoð ítrekað eftir að hún fæddi son sinn á heimili sínu. Hún átti að hafa neitað því að kalla eftir sjúkrabíl þrátt fyrir að hafa misst mikið blóð.
Fram kom að Hatfield hefði verið staðráðin í að forðast hvers kyns læknisfræðilega íhlutun fyrir, meðan á og eftir fæðingu stóð. Eiginmaður hennar, Nathan Warnecke, og virðast hafa virt þær óskir hennar.
Að lokum var Hatfield flutt á sjúkrahús þar sem tugir heilbrigðisstarfsmanna reyndu að bjarga lífi hennar. Tilraunir þeirra báru þó ekki árangur.
Nýfæddur sonur hennar, Axel, lifði fæðinguna af og er sagður við góða heilsu.
Eftir andlátið minntist Warnecke eiginkonu sinnar á samfélagsmiðlum þar sem hann lýsti henni sem „sálufélaga sínum“ og „besta vini“.
Rannsókn á atvikinu stendur enn yfir og er markmið hennar meðal annars að varpa ljósi á aðdraganda andlátsins og þær ákvarðanir sem teknar voru í tengslum við fæðinguna.