Fasteignasalinn Halldór Kristján Sigurðsson hefur komið á fót svokölluðu hópkaupafélagi sem miðar að því að bjóða almennum kaupendum á fasteignamarkaði sömu kjör og stærri kaupendur og fjárfestar njóta í gegnum magnafslátt.
Félagið ber heitið Fjöldakaup og er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, en Halldór telur þessa leið geta verið vænlegan kost fyrir íslenska fasteignakaupendur til frambúðar.
Með því að sameina krafta sína og eftirspurn geta kaupendur þannig náð fram betri kjörum hjá seljendum sem annars væru ekki á færi einstaklinga. Í því felist einnig ávinningur fyrir seljendur, sem spari sér kostnað með því að afhenda margar íbúðir í einu í stað þess að selja þær í stykkjatali yfir langt tímabil.
Ná fram 6% hagstæðari kjörum
Halldór segist hafa safnað yfir 500 kaupendum og að þegar hafi nokkur kauptilboð í eignir verið samþykkt.
„Að meðaltali hefur okkur tekist að tryggja 6% betri kjör en gengur og gerist á íbúðarmarkaði,“ segir Halldór í samtali við mbl.is.
Þá segir hann dræma sölu íbúða undanfarna mánuði setja söluþrýsting á framkvæmdaraðila. „Það er bullandi kaupendamarkaður," segir Halldór. „Í fyrra, þegar við byrjuðum á þessu voru afsláttarkjörin ekki nema um 2,5% en í dag eru um 2.200 íbúðir sem standa auðar á öllum markaðnum sem er auðvitað ekki staða sem gengur til langs tíma fyrir verktakana.“
Vel þekkt aðferð í Evrópu
Halldór segir þessa aðferð við húsnæðiskaup ekki nýja af nálinni. Hún sé vel þekkt víðs vegar um Evrópu en algengt sé að hópkaupafélög geri tilboð í fasteignir sem enn eru á fyrstu stigum framkvæmda og að Fjöldakaup hafi m.a. gert nokkur slík.
„Í Þýskalandi eru t.d. heilu hverfin keypt með þessari aðferð,“ segir Halldór.
Hann segir mikinn meirihluta núverandi þátttakenda vera yngri kaupendur og vonast hann til að safna um 1.000 manns fyrir áramót. Að lokum hvetur hann verktaka til að hafa samband því ljóst sé að fasteignakaupendur séu til staðar, það þurfi bara að bjóða þeim réttu kjörin til að eignirnar seljist.