Er þetta meðal þess sem lesa má á vef Veðurstofu Íslands en þar kemur einnig fram að búast megi við austlægri eða breytilegri átt á morgun og einhverjum hviðum en hvassast verði syðst á landinu. Bjart verði norðaustanlands en skýjað og úrkomulítið sunnanlands. Áfram verði hlýtt en hitinn færist norður og gæti farið upp í um 18 gráður þar en verður nær tíu gráðunum fyrir austan.
Veðurhorfur á landinu næstu daga.
Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Væta með köflum vestan- og norðvestanlands, einkum síðdegis, bjart norðaustanlands, en annars skýjað og þurrt að kalla. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands, en svalast austast.
Á þriðjudag: Norðaustan 5-13 m/s og víða bjart, en skýjað að mestu austast. Hiti 7 til 17 stig, svalast austanlands.
Á miðvikudag: Norðaustan 8-15 með rigningu, en þurrt að mestu vestanlands. Hiti 5 til 13 stig, mildast vestan- og suðvestanlands.
Á fimmtudag: Norðlægari 8-15 með rigningu, en úrkomulítið sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 13 stig, mildast syðst.
Á föstudag og laugardag: Útlit fyrir norðlæga átt með dálítilli vætu og svölu veðri, en bjartara og mildara syðra og líkur á síðdegisskúrum.