Áform til lagabreytinga um íslensk landshöfuðlén voru kynnt á samráðsgátt stjórnvalda skömmu fyrir helgi. Í svari innviðaráðuneytisins til fréttastofu RÚV frá því í febrúar segir að: „Innviðaráðherra telur brýnt að breyta lögum um íslensk landshöfuðlén á þann veg að hert verði á opinberu eftirliti með skráningarstofunni sem heldur utan um landshöfuðlénið .is.“
Lagabreytingunum er ætlað að verja orðspor landsins tengt notkun á landsléninu, auka vernd neytenda og koma á sterkara eftirliti með markaðsráðandi aðilum.
ISNIC er hlutafélag í einkaeigu
Í umsögn ráðuneytisins um áformin segir einnig: „ Internet á Íslandi hf. (ISNIC), sem er eini útnefndi skráningaraðili íslensks landshöfuðléns gagnvart alþjóðlegu stjórnkerfi internetsins og er því í einokunaraðstöðu hvað varðar úthlutun léna með endingunni „.is“.“
Þar er tekið fram að hvergi annar staðar á Norðurlöndunum er þetta eins, þar sem slík starfsemi sé í „höndum hagnaðardrifins einkafyrirtækis“.
Þá er sérstaklega sagt að verðlagning léna á Íslandi sé mun hærri en í nágrannaríkjum og að engin viðmið eða reglur gildi um hana.
ISNIC hagnaðist um rúmlega 250 milljónir árið 2025.
Þór Jensen, framkvæmdastjóri ISNIC, vildi ekki tjá sig við fréttastofu þegar eftir því var leitað. Hann sagði að þeir myndu gefa sína umsögn um áformin en á þessari stundu væri best að segja sem minnst.
Mikilvægt að lögregluyfirvöld hafi heimild til að loka lénum
Í núverandi lögum er ekkert sem kemur í veg fyrir svokallaðar „leppskráningar“ léna en það er þegar milliliður sem er skráður rétthafi léns er ekki raunverulegur stjórnandi þess. Það eykur hættu á að lénin séu notuð í sviksamlegum tilgangi. Þá vill ráðuneytið verja orðspor íslenska lénsins og veita lögreglu heimild til að krefjast lokunar léna: „Lögregluyfirvöld og dómsmálaráðuneyti hafa bent á að lögreglu skorti sjálfstæða heimild til að krefjast lokunar og haldlagningar á lénum sem tengjast brotastarfsemi.“
Verður mælt fyrir frumvarpinu í október
Í febrúar voru sagðar fréttir af vefsíðu um ICE-liða í Bandaríkjunum sem hafði endinguna .is. Í svari innviðaráðuneytisins til RÚV var skýrt tekið fram að skýrari lagaramma þyrfti um landshöfuðlénið.
„Innviðaráðherra telur brýnt að breyta lögum um íslensk landshöfuðlén á þann veg að hert verði á opinberu eftirliti með skráningarstofunni sem heldur utan um landshöfuðlénið .is. Meðal annars með því að skráningarstofa þurfi að lágmarki að senda reglur sem hún setur um skráningu léna til Fjarskiptastofu til samþykktar, sem fengi jafnframt heimildir til að gera breytingar á reglunum. Einnig að gerðar verði ríkari kröfur í lögunum um upplýsingagjöf umsækjanda um lén og efnisleg skilyrði sett fyrir notkun léna til að sporna við svikastarfsemi.“
Í júlí undirstrikaði innviðaráðuneytið að málið væri á dagskrá og unnið væri að frumvarpi um breytingu á lögum. Líklega verður mælt fyrir frumvarpinu í október, enda málið brýnt að mati ráðuneytisins: „Frumvarpið er brýnt eins og fram kom í svari okkar í febrúar. Markmið þess er að setja skýrari regluramma um starfsemina sem feli í sér eftirlit með henni í þeim tilgangi að tryggja neytendavernd, sanngjarna verðlagningu á þjónustu, sporna gegn svikastarfsemi, vernda orðspor íslenska ríkisins og stuðla að bættu netöryggi.“