Á fjórða þúsund manns yfirgefa heimili sín vegna skógarelda

Á fjórða þúsund manns yfirgefa heimili sín vegna skógarelda

Hátt í fjögur þúsund manns var gert að yfirgefa heimili sín í Toskana-héraði á Ítalíu í dag vegna skógarelda sem þar geisa.

Yfir átta hundruð hektarar hafa orðið eldunum að bráð í Toskana að síðustu daga, í fjöllunum milli borganna Lucca og Pisa. Átta hundruð hektarar eru á við eitt þúsund fótboltavelli.

Skógareldar eru algengir á Ítalíu en hefjast yfirleitt síðar á sumarmánuðum. Talið er að óvenjumikil hlýindi í veðri miðað við árstíma hafi hrint eldunum fyrr af stað en ella. Þá hafa sterkir vindar undanfarna daga ýtt enn fremur undir útbreiðslu þeirra.

Í yfirlýsingu frá bæjarfélaginu San Giuliano Terme segir að ítölsk yfirvöld hafi flutt um þrjú þúsund og fimm hundruð manns brott af heimilum sínum vegna eldanna. Þar á meðal þurfti að rýma tvær líkamsræktarstöðvar þar sem rúmlega hundrað flóttamenn höfðu fengið að dvelja.

Þrjár vatnsdæluvélar, nítján slökkviliðsbílar og þyrla vinna nú að því að slökkva eldana á meðan fulltrúar her- og lögregluyfirvalda aðstoða við rýmingu íbúa.

#fjórða #heimili #skógarelda #yfirgefa #þúsund


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-01-a-fjorda-thusund-manns-yfirgefa-heimili-sin-vegna-skogarelda-474096

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260