28 voru drepnir og um 120 særðust í árásum Rússa á borgirnar Zaporizhzhia, Kramatorsk, Dnipro og fleiri borgir í Úkraínu í gær. Þetta er eitt mesta mannfall í Úkraínu í nokkrar vikur.
Þá greindu yfirvöld á Krímskaga frá því að fimm hefðu verið drepnir í árásum Úkraínumanna á Krímskaga. Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014.
Rússar hafa lýst yfir einhliða vopnahléi dagana 8. og 9. maí vegna hátíðarhalda á föðurlandsdeginum mikla, sigurdegi síðari heimsstyrjaldarinnar. Þeir hóta stórfelldum eldflaugaárásum á miðborg Kyiv brjóti Úkraínumenn gegn því. Úkraínumenn hafa einnig lýst yfir einhliða vopnahléi í dag, 6. maí.
Rússnesk stjórnvöld höfðu lýst því yfir að hátíðarhöld í ár yrðu með minna sniði en áður og enginn herbúnaður eða hergögn yrðu til sýnis í ár. Þá lokuðu yfirvöld fyrir netaðgang í farsímakerfinu í Moskvuborg í gær og búist er við að aðgangur að netinu verði takmarkaður fram á laugardag.
Svo virðist sem Rússar ætli sér ekki að virða vopnahlé Úkraínumanna. Greint hefur verið frá yfir 100 drónaárásum og þremur flugskeytaárásum í dag.
Fréttin hefur verið uppfærð með uppfærðum tölum yfir mannfall í Úkraínu og árásir í vopnahléi.