Starfsfólki Hilton Nordica og Hilton Natura-hótelanna var tilkynnt í gær að því yrði sagt upp í næstu viku. Berjaya hefur rekið hótelin en Íslandshótelin taka við rekstrinum innan skamms. Húsnæðið er í eigu Reita sem leigja það út til rekstrar.
Vísir greindi frá því í gær að starfsfólki hefði verið tilkynnt um yfirvofandi uppsagnir, starfsfólk á minnst öðru hótelinu var boðað til fundar í gær. Annar fundur hefur verið boðaður með starfsfólki í dag. Starfsfólk sem fréttamenn Vísis ræddu við lýsti óvissu um framtíð sína og sagði að þrátt fyrir yfirlýsingar opinberlega um að nýr eigandi yfirtæki ráðningarsamninga hefði ekkert verið rætt við það.