Yfir þrjátíu voru drepnir í loftárásum Ísraela á Suður-Líbanon í gær og minnst fjörutíu særðust. Ísraelsher hefur hert mjög árásir og í morgun kom til átaka milli ísraelskra hermanna og liðsmanna Hezbollah í suðurhluta Líbanons.
Hezbollah-samtökin í Líbanon greindu í morgun frá því að komið hefði til skotbardaga milli liðsmanna þeirra og ísraelskra hermanna í bænum Zawtar al-Sharqiah, norðanmegin við Litani-ána og það svæði sem Ísraelsher kallar öryggissvæði á landamærum ríkjanna.
Hezbollah segist hafa gert árásir á ísraelska hermenn og skriðdrekasveitir í Suður-Líbanon. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tilkynnti í gær að hert hefði verið á hernaðaraðgerðum á svæðinu.
Fjölmennt herlið hefði sölsað undir sig víðfeðm landsvæði með það að markmiði að vernda byggðir í norðanverðu Líbanon. Viðkvæmt vopnahlé hefur staðið milli Ísraels og Líbanon frá því í apríl og á þeim tíma hafa yfir 600 Líbanir verið drepnir í atlögum Ísraelshers.
Þessi herta sókn Ísraelshers fer líklega ekki vel í Írana, sem nú semja við Bandaríkin um varanlegt vopnahlé eða friðarsamkomulag. Leiðtogar beggja ríkjanna hafa ýjað að því síðustu daga að stutt sé í samkomulag.
Í gær réðist Bandaríkjaher á írönsk skip á Persaflóa og Íranar hótuðu að bregðast við af hörku. Mojtaba Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, sagði að árásum og brotum á vopnahléssamkomulagi yrði svarað. Íranar gætu til að mynda ráðist aftur á hernaðarmannvirki Bandaríkjanna í Persaflóaríkjum, eins og þeir gerðu í byrjun mars.
Bandaríkjastjórn er sögð leggja mikla áherslu á að semja um frið við Írana og opnun Hormússunds, en hömlur á gas- og olíuflutningi um sundið hafa haft mikil áhrif á heimshagkerfið undanfarna mánuði.